ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf.
Forseti. Merkilegt mál sem við fáum hérna til umræðu, ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka, sérstaklega miðað við það hvernig fyrri ráðstafanir hafa farið. Verðið í fyrstu sölu var ansi lágt, það voru greinilega gerð þó nokkuð mikil mistök í fyrstu sölunni við verðmat á Íslandsbanka og þar var tvímælalaust selt á undirverði. Í annarri sölunni var vandinn aðeins stærri eins og hefur verið farið yfir í nokkrum atrennum; Fjármálaeftirlitið, umboðsmaður Alþingis og Ríkisendurskoðun. En það eru enn þá þó nokkrar spurningar sem á eftir að svara betur og púsla saman öllum þessum brotum sem hafa komið fram í þessum mismunandi rannsóknum sem fram hafa farið. Síðast en ekki síst á eftir að skoða í raun og veru hvort sala númer tvö eða ráðstöfun númer tvö, það er kannski nákvæmara orðalag, snerti lög um ráðherraábyrgð með einhverjum hætti. Því tel ég algjörlega nauðsynlegt að áður en farið er út í að selja meira af Íslandsbanka þá verði stofnuð rannsóknarnefnd vegna alla vega annarrar sölunnar, til þess að öll kurl séu komin til grafar varðandi málsatvik í þeirri ráðstöfun.
Það er mjög áhugavert að sjá þetta frumvarp í samhengi við fjármálaáætlun og fjárlög ríkisstjórnarinnar þar sem sölu á Íslandsbanka er í rauninni ætlað að fylla upp í ákveðið gat og ekki einu sinni fylla upp í heldur moka ofan í holu í hallarekstri ríkisins. Þetta er einskiptissala. Eins og talað er um hérna þá er þetta ákveðin gullgæs hvað arðgreiðslur varðar en það hefur verið ákvörðun og var ákvörðun fyrrverandi fjármálaráðherra, fyrrverandi utanríkisráðherra og núverandi forsætisráðherra, sem bar ábyrgð á annarri ráðstöfun Íslandsbanka, að reka þessa ríkisbanka með hámarksarðsemi. Það var gerð mikil arðsemiskrafa á þessa ríkisbanka. Við ættum að spyrja okkur hvort það sé eðlilegt að ríkið starfi á þann hátt.
Ástæðan fyrir því að þessi arðsemiskrafa var gerð var til að hámarka söluandvirði bankanna. Það var talið mikilvægast. Áttum okkur aðeins á því að það er alveg tilgangslaust fyrir ríkið að eiga marga banka, ríkisbanka eitt, ríkisbanka tvö, ríkisbanka þrjú, það er frekar tilgangslaust. En á sama tíma og ríkið gerir arðsemiskröfu á banka þá er í raun og veru verið að beina óbeinum skatti að neytendum eða viðskiptavinum ríkisbankanna. Þessu er öðruvísi farið hvað varðar t.d. önnur fyrirtæki sem sjá um auðlindanotkun, eins og Landsvirkjun sem nýtir í rauninni sameiginlega auðlind okkar allra okkur öllum til hagsbóta, það er ekki beint gerð arðsemiskrafa á Landsvirkjun á sama hátt þó að vissu leyti sé farið að gera það líka. Arðurinn kemur aðallega út í lægra orkuverði þegar allt kemur til alls. Síðan er gerð ákveðin arðsemiskrafa til að hægt sé að viðhalda mannvirkjum og bæta við þau mannvirki sem þar liggja undir. Það er kannski síður að gerð sé arðsemiskrafa, um arð inn í ríkissjóð sem er í rauninni dálítið undarlegt því þegar allt kemur til alls þá beinist sú arðsemi eða uppruni hennar gagnvart neytendum. Það væri ágætt að aðskilja þar t.d. hvaðan arðurinn kemur, annars vegar frá almennum heimilum og hins vegar frá stórnotendum. Þar er hægt að gera arðsemiskröfu. Þar er hægt að hafa markað og þess háttar en ekki gagnvart heimilum.
Um ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka af þessari ríkisstjórn verður að segjast að núverandi ríkisstjórn getur ekki sagt að hún hafi umboð til þess að selja bankann. Vissulega er hægt að vísa í þetta: Við erum með rosalega marga þingmenn, meiri hluta á Alþingi og það gefur okkur umboð til að gera allan fjandann. En það er ekki alveg svo einfalt. Lýðræðið er flóknara en svo að það sé bara hægt að segja: Við erum með meiri hluta á þingi og þá megum við bara gera hvað sem er. Það hefur oftar en ekki gerst, t.d. vegna mótmæla o.s.frv., að ríkisstjórnir hafa skipt um skoðun, t.d. vegna þess að það hefur verið gripið til málskotsréttar. Þrátt fyrir stóran meiri hluta þingsins þá er sagt: Fyrirgefið, nei, við ætlum að skjóta þessu til þjóðarinnar. Hver veit nema einhverjum detti í hug að safna undirskriftum fyrir málskoti á þessu máli til þjóðarinnar, beint ofan í forsetakosningar? Væntanlega væri verið að klára þetta mál, ef það tekst, einhvern tímann eftir forsetakosningar. Tíminn fram að þeim er alla vega mjög lítill. Þá er einhvers konar millibilsástand frá því að forsetakosningar fara fram, frá því að fráfarandi forseti situr þangað til nýr forseti tekur við, það væri sá forseti sem ætti að taka ákvörðun um það hvort vísa ætti málinu til þjóðarinnar eða ekki.
Það er einmitt þess vegna sem við Píratar höfum talað um að nauðsynlegt sé að setja málskotsréttarákvæði í stjórnarskrá til þess að lýðræðið sé ekki bara á fjögurra ára fresti þar sem einhverjir flokkar geta rottað sig saman og sagt: Við erum með meiri hluta á þingi og þar með erum við með umboð til að gera bara hvað sem er. Við ráðum, við erum með sterkan meiri hluta. Punktur. Nei, lýðræðið er ekki þannig af því að við kjósum í rauninni fólk en þegar allt kemur til alls samt flokka, ekki um einstaka málefni heldur um almennt umboð. Það þýðir að þegar upp koma einstök málefni sem fólk sem styður alla jafna ríkisstjórnarflokkana er ekkert endilega sammála þeim um, þá getur það gripið í bremsuna og sagt: Já, já, almennt séð styðjum við ykkur — það er að vísu ekki staðan núna miðað við skoðanakannanir, en allt í lagi, skoðanakannanir eru bara eins og þær eru og það eru vissulega kosningar sem skiptir máli. En það getur gerst, gerðist í Icesave t.d.. Eða ætlar ríkisstjórnin bara að hunsa það og gleyma því atviki í samhengi við t.d. þetta mál eða hentar það bara ekki að íhuga það að lýðræðið sé í rauninni aðeins stærra en bara umboð ríkisstjórnarinnar samkvæmt þingmannafjölda á þingi?
Nú er það svo að ítrekað hefur það sýnt sig að traust gagnvart ríkisstjórninni er ekki mikið. Það er í raun minna gagnvart þessu máli en almennt gagnvart ríkisstjórninni. Það er erfitt að sjá, eftir fyrri og seinni ráðstöfun eignarhluta Íslandsbanka, að ríkisstjórninni sé treystandi til að setja sjálfri sér reglur um það hvernig eigi að selja afganginn. Þegar meðhöndlunin á þessari eign hefur verið eins og raun ber vitni, af hverju ætti fólk að treysta því að næsta skipti verði nú betra? Þetta er svona eins og: Hann plataði mig einu sinni og þá er ég bjáninn, en ef hann platar mig tvisvar, er það þá ekki öfugt?
Þetta er nefnilega vandamál. Við verðum að ná að sinna þeim málum sem við glímum við á aðgengilegan og heiðarlegan hátt. Við stöndum frammi fyrir því núna að við erum með mjög alvarlegt mál á bak við þetta mál hérna þar sem fjármálaráðherra þáverandi brast hæfi til að sinna þeirri sölu. Og þrátt fyrir varúðarorð, þrátt fyrir — ja, það kom fram í nefndaráliti mínu alla vega hvað söluna varðaði að ég treysti ekki þáverandi fjármálaráðherra til að sinna sölunni og úr varð að þáverandi fjármálaráðherra gat ekki sinnt því, einfaldlega vanrækti skyldur sínar gagnvart því verkefni. Nú er kominn nýr ráðherra, vissulega, merkilegt, það er ný ríkisstjórn en enn með þann ráðherra í forsæti sem klúðraði þessu algerlega í síðustu tilraun. Það er pínulítið skýr mynd sem er verið að mála hér fyrir framan okkur þegar allt kemur til alls. Þrátt fyrir þennan blessaða meiri hluta þá eru samt gallar hér sem við verðum að horfast í augu við og taka til okkar, leysa úr þeim áður en við tökum næstu skref. Ef hætta er á því að það klúðrist eitthvað meira sem hefði getað verið hægt að koma í veg fyrir, ef við hefðum verið búin að afgreiða fyrri vandamál, þá erum við einfaldlega óábyrg gagnvart þessu verkefni.
Ég hlakka ekkert rosalega til að glíma við þetta verkefni, verð ég að segja, af því að reyndin hefur verið sú að það er erfitt að fá ríkisstjórnarmeirihlutann til að hlusta á gagnrýni. Ríkisstjórnin virðist taka allri gagnrýni sem einhvers konar pólitísku andófi eða eitthvað því um líkt. Þið meinið ekkert með því sem þið eruð að segja, þið eruð bara að reyna að finna einhvern vinkil sem hljómar vel eða eitthvað því um líkt, það er í raun engin innihaldsrík gagnrýni þarna á bak við. Svona mæta stjórnarþingmenn ætíð gagnrýni okkur. En aftur og aftur hefur það sýnt sig að gagnrýni stjórnarandstöðunnar er innihaldsríkari en ríkisstjórnarflokkarnir hafa viljað vera láta, hafa viljað viðurkenna.
Af þeim sökum treysti ég núverandi ríkisstjórn ekki til að sinna þessu máli né neinu öðru máli sem er svona mikilvægt og jafnvel ekki einu sinni minna mikilvægum málum. Ég hef ekki neitt persónulega á móti hæstv. fjármálaráðherra almennt séð. Það er stundum samstarfið sem er vandamál frekar en einstaka aðilar í því samstarfi, bara til að hafa það á hreinu. Ég efast ekki um að hæstv. fjármálaráðherra geri sitt besta. En stundum, þrátt fyrir að maður geri hið besta, þá eru ytri kröfur eða væntingar eða ýmislegt svoleiðis sem ekki er hægt að hafa góða stjórn á sem skemma fyrir. Ég held að svo verði einfaldlega í þessu tilfelli því að það er munur á að setja reglurnar til að byrja með og síðan að fara eftir þeim. Við sjáum það t.d. með Bankasýsluna. Það átti að leggja hana af. Það er ekki enn búið að gera það. Bankasýslan er samt enn að skipta sér af bönkunum á merkilegan hátt. Það er samt búið að sýna fram á að starfsemin sem fer fram hjá Bankasýslunni er ekki góð. Það er ekki búið að sýna fram á það að lagaverkið á bak við það sem Bankasýslan á að gera sé lélegt heldur bara það að framkvæmdin sé slæm. Það er því ekki nóg að setja góðar reglur þegar ekki er farið vel eftir þeim. Það hefur verið vandinn þegar allt kemur til alls í þessum málum. Það er ekki farið eftir reglunum. Reglurnar voru alveg ágætar en þær náðu ekki yfir þau brot sem urðu síðan. Fólk fór viljandi eða óviljandi fram úr sér í framkvæmd laganna og það er ekki ásættanlegt.