154. löggjafarþing — 96. fundur,  16. apr. 2024.

ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf.

920. mál
[15:42]
Horfa

Teitur Björn Einarsson (S):

Herra forseti. Fyrst ber að geta þess að þetta frumvarp til laga, um ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka, er að mínu mati afar þýðingarmikið og brýnt í ljósi þess að það er mikilvægt að ríkið losi sig almennt við eignarhluti í fjármálafyrirtækjum. Fyrir því eru tvær ástæður. Aðallega eru það fjárhagsleg atriði sem koma til skoðunar. Í öðru lagi eru það að mínu mati stjórnunarleg eða stjórnsýsluleg eða eigandaleg sjónarmið sem lúta að því hversu lélegur eigandi ríkið er almennt að fyrirtækjum á samkeppnismarkaði.

Varðandi fjárhagslegu atriðin þá kemur fram í greinargerð frumvarpsins að eignarhlutur ríkisins í Íslandsbanka, 42,5%, getur verið metinn á bilinu 90–100 milljarða. Þetta eru talsverðar fjárhæðir. Vaxtagjöld ríkisins á hverju ári eru um 100 milljarðar, rétt rúmlega, ef litið er til vaxtaberandi skulda, verðbóta og svo reiknaðra vaxta vegna lífeyrisskuldbindinga. Skuldir ríkissjóðs eru rúmlega 1.000 milljarðar eða 1.400 milljarðar nákvæmlega og það er þannig að vaxtagjöld eru þriðji stærsti útgjaldaliður ríkisins á eftir heilbrigðismálum og félagsþjónustunni í heild sinni. Það er því gríðarlega mikilvægt að við horfum til þess hvaða ávinningur er af því að lækka skuldir ríkissjóðs.

Ég geng út frá því, herra forseti, og það er það eina skynsamlega í mínum huga, þegar af þessari sölu verður og ríkið hefur losað um allan sinn eignarhlut, að fjármununum verði ráðstafað til lækkunar skulda. Það er skynsamlegasta aðgerðin, það er skynsamlegasta ráðstöfunin til að bæta hag ríkissjóðs, fyrst og fremst til að lækka vaxtagjöld ríkissjóðs. Það hefur auðvitað heilmikið að segja að við náum því að skuldahlutföll ríkissjóðs geti lækkað um 1% af vergri landsframleiðslu með þessari ráðstöfun. Það er gríðarlega mikilvægt að við náum þeirri stöðu. Þess vegna segi ég að málið sé brýnt, fyrst og fremst til þess að bæta hag ríkissjóðs.

Hér hefur verið komið inn á það í þingræðum frá nokkrum hv. þingmönnum að það væri óráð að selja gullgæs. Það er rétt sem hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra hefur komið inn á, hvenær og á hvaða tímapunkti er hægt að líta svo á að eignarhald í fjármálafyrirtæki sé ávallt skynsamlegt. Þetta er áhætturekstur, þetta er samkeppnisrekstur. Tækninni fleygir fram á þessum markaði og það er ekkert fyrirséð að arðsemi Íslandsbanka eða annarra fjármálafyrirtækja verði jafn góð og hún hefur verið undanfarin ár. En það er líka atriði sem gleymist að taka fram að við verðmat á sölu þessara eignarhluta er það vegið inn í verðmætið hver ávinningur er af arðsemi eignarhlutarins til framtíðar litið. Það er búið að gera ráð fyrir því hvað verði hugsanlega greitt í arð á næstu árum. Það er einfaldlega þannig að það er vegið inn í málið og ætti ekki að koma að sök.

Eins má líka draga það fram að meðan vextir eru jafn háir og þeir eru, ekki eingöngu á Íslandi, við sjáum að vextir annars staðar fara líka hækkandi, er það mun betri ávöxtun á fjármunum að greiða niður skuldir. Það er augljóslega mun betri arðsemi af því eða ávöxtun en hægt er að fá í arðgreiðslur. Hinn fjárhagslegi ávinningur af þessu er augljós að mínu mati og hlýtur að vera það sem þingheimur setur niður fyrir sig og horfir til, þ.e. til hvers er verið að ráðast í þessa sölu.

Í annan stað verð ég að koma inn á það hér, eins og ég nefndi áðan, að ríkið er ekki góður eigandi fyrirtækja í samkeppnisrekstri. Nægir þá að nefna nýlegt dæmi sem er svo sem enn í gangi, en það eru fyrirhuguð kaup Landsbankans á tryggingafyrirtækinu TM sem er á einkamarkaði. Þannig væri ríkið að auka umsvif sín á þeim markaði. Það væri verulega óskynsamlegt. Þetta mál hefur dregið fram hversu erfitt það er að samrýma þau sjónarmið annars vegar að framkvæmdarvaldið, með ráðherra í fararbroddi, eigi alls ekki að hafa afskipti af daglegum rekstri þessara ríkisfyrirtækja og láta eigendastefnu almennt gilda og hafa millilið sem á að sjá um eftirfylgni með eigendastefnunni og val á stjórnarmönnum, hafa umsjón með þessum atriðum, og hins vegar að það eigi í raun að handstýra því hvað ríkisfyrirtækin eiga að vera að gera, hvað þau eiga að greiða í arð o.s.frv. Þetta fer ekki saman. Það eru mýmörg dæmi þess hversu óheppilegt það er að ríkið eigi fyrirtæki í samkeppnisrekstri.

Annar vandi kemur síðan skýrlega í ljós og það sést á því að stjórnendur slíkra fyrirtækja, forstjóri eða stjórnendur, virka eins og þeir séu ábyrgðarlausir, jafnvel umboðslausir. Eigandavaldið, eftirlitsvald eigandans, er ekki jafn ríkt og er ella í fyrirtækjum á einkamarkaði. Það eru því mýmörg dæmi um stjórnunarvanda að þessu leyti og almennt er ríkið ekki vel til þess fallið að eiga fjármálafyrirtæki, hvað þá í rauninni eignarhlut í tveimur fjármálafyrirtækjum. Því held ég að rökin fyrir því að selja að öllu leyti hlut ríkisins í Íslandsbanka séu ærin og töluverð, sérstaklega með hliðsjón af því hvernig það kom til að ríkið fékk þennan banka í hendur. Ríkið fékk bankann í hendur sem svona uppsóp af stöðugleikaframlögunum. Og það hefur aldrei staðið til, hefur aldrei legið fyrir þessum þingheimi annað en að ríkið myndi losa sig við þennan eignarhlut.

Herra forseti. Í annan stað vil ég geta þess um efni frumvarpsins, það hefur ekki verið mikið komið inn á það, að það er að mínu mati skýrt og skorinort þar sem leiðin sem er verið að leggja til er í senn einföld og hún er alveg skýr. Hún er án einhverra huglægra viðmiða. Það er niðurnjörvað í frumvarpinu allt sem skiptir máli í meginatriðum, fyrst og fremst hvaða leið á að fara. Það er talað um markaðssett útboð sem er þá almennt útboð opið öllum. Þetta er ákaflega skýrt og þetta er einfalt. Þetta er gert með hliðsjón af því að það var útboð í júní 2021, sem var auðvitað frumútboð, sem tókst einstaklega vel. Þetta er það útboðsfyrirkomulag sem reynslan hefur sýnt að hefur gefist vel. Þá var reyndar um að ræða frumskráningu á markað en hér erum við ekki einu sinni að ræða um frumskráningu vegna þess að Íslandsbanki er nú þegar skráður á markað. Þess vegna tel ég að sú leið sem ríkisstjórnin, hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra með þessu frumvarpi, er að leggja til sé skynsamleg og hún sé góð.

Það eru líka önnur atriði sem eru skiljanleg af þessum sökum. Það er auðvitað verið að bregðast við reynslunni af því sem við höfum séð gerast áður. Ég nefni sem dæmi að það er verið að fastsetja hvert hlutfall söluþóknunar hjá söluaðila eigi að vera. Það eru svona atriði, efnisatriði í frumvarpinu, sem ég tel vera skynsamleg.

Sérstaklega vil ég koma inn á einn þátt. Með frumvarpinu er verið að bregðast við einni athugasemd frá umboðsmanni Alþingis frá 5. október 2023 þar sem fjallað var um almennt hæfi og sérstakt hæfi þáverandi fjármála- og efnahagsráðherra við sölu tvö á Íslandsbanka árið 2022. Það er reyndar rétt að geta þess og rifja það mál sérstaklega upp af því að það hefur verið farið frjálslega með staðreyndir í því máli í þessari umræðu. Álit umboðsmanns Alþingis fjallar um það hvernig fjármála- og efnahagsráðherra hefði átt að gæta að hæfi sínu. Hann fékk eingöngu frá Bankasýslunni heildarniðurstöðuna, um heildarverð og verð hlutanna. Hann hafði aldrei séð og hefði aldrei getað séð hverjir væru kaupendur. Það sem umboðsmaður játar í áliti sínu er að það vantaði upp á að tekið væri á því í lögum að Alþingi myndi taka afstöðu til þess ef sérstakar hæfisreglur ættu að gilda. Hvernig eiga þær þá að gilda? Hvernig á að koma því fyrirkomulagi fyrir? Þá þarf að breyta því öllu. Eða taka einfaldlega afstöðu til þess að þær gildi ekki í þessu tilviki. Það er mjög skiljanlegt og eðlilegt að þetta sé gert með þessum hætti. Ástæðan er sú, eins og ég var að rekja hérna áðan, að fyrirtækið er þegar skráð á markað. Það er verið að leggja til markaðssett útboð sem er þó opið öllum, fagfjárfestum sem almenningi, þannig að við þessa ákvörðun við söluna er ekkert rými til einhverrar matskenndrar ákvörðunar sem kallar á að ráðherra þurfi að gæta að hæfi sínu. Ég held að þetta sé ágætlega rökstutt hér í greinargerðinni og þau sjónarmið sem eru undirliggjandi og er sammála þeim.

Ég kom líka inn á, í upphafi ræðu minnar, þessa ráðstöfun eignarhlutar. Nú er það auðvitað svo að fjármunum er á almennt ráðstafað í fjárlagafrumvarpi og fjárlögum sem gilda hverju sinni. En ég tel mikilvægt að þau sjónarmið verði rædd hér sem eru undirliggjandi, að söluandvirði Íslandsbanka verði varið til lækkunar skulda. Þetta er atriði sem hv. efnahags- og viðskiptanefnd getur fjallað aðeins ítarlegar um. Eins kunna auðvitað önnur sjónarmið að ráða samhliða umræðum hér við framlagningu fjármálaáætlunar 2025–2029.

Að lokum, herra forseti, þá er það þannig að þetta mál er brýnt. Það er mikilvægt að hv. efnahags- og viðskiptanefnd fari yfir öll þessi sjónarmið. Aðalatriðið er að það er verið að bregðast við fyrri sölum, það er verið að taka tillit til þeirrar gagnrýni sem hefur komið fram, gagnrýni sem var á þetta lokaða hlutdeildarmarkaðsútboð sem var framkvæmt 2022 og var lokað fyrir tilteknum fjárfestum. Það er verið að leggja til hér ákveðin grundvallarsjónarmið sem hefur verið gagnrýnt að hafi ekki ríkt. Ég nefni sérstaklega gagnsæi. Það er kveðið sérstaklega á um það í frumvarpinu að kaupendalistinn sé birtur, nafn og kennitala, og þar með sé mikilvægum þagnarskylduákvæðum sem gilda í lögum um fjármálafyrirtæki algerlega vikið til hliðar. Það er verið að koma til móts við þessi atriði í frumvarpinu.

Ég er hlynntur markmiðunum. Ég er hlynntur þeirri leið sem hefur verið valin. Þetta er frumvarp sem er mjög til bóta. Það er gríðarlega mikilvægt að okkur, stjórnvöldum, auðnist að selja Íslandsbanka að fullu og ráðstafa fjármununum til lækkunar skulda. Það er mikilvægt fyrir ríkissjóð og það er mikilvægt fyrir landsmenn alla.