154. löggjafarþing — 96. fundur,  16. apr. 2024.

ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf.

920. mál
[16:21]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Þau frumvarpsdrög sem hér um ræðir fela það í sér að ríkið ráðstafi eignarhlut sínum í Íslandsbanka með svokölluðu markaðssettu útboði. Íslandsbanki var, eins og hinir stóru viðskiptabankarnir, reistur á herðum heimila landsins sem lágu þá í sárum eftir stórfelldan samfélagslegan skaða sem hlaust af gjaldþrotum forvera þessara sömu banka haustið 2008. Tugþúsundir einstaklinga misstu heimili sín í hendur bankanna og þeir ollu enn fleirum stórfelldu tjóni. Mörg þeirra hafa aldrei náð sér eftir þá aðför sem þau máttu þola. Frá því að ríkið fékk bankana í fangið hefur það alltaf verið afstaða mín sem og þeirra samtaka sem ég leiði, Hagsmunasamtaka heimilanna, að ekki komi til greina að einkavæða þá aftur fyrr en heimilunum hafi verið bætt að fullu það tjón sem þeir ollu þeim og hafa valdið síðan þá. Til þess skuli nýta þá fjármuni sem liggja í bönkunum sem og hagnaðinn af áframhaldandi starfsemi þeirra.

Jafnframt má draga í efa þá hugmynd að bankarekstri sé best borgið í höndum einkaaðila. Leyfi til bankareksturs fylgir gríðarlegt vald, ekki aðeins til að skapa með útlánum stærstan hluta þeirra fjármuna sem teljast til peningamagns í umferð heldur einnig til, að því er virðist, nánast ótakmarkaðrar gjaldtöku af þeirri sameiginlegu auðlind þjóðarinnar sem heimilin óneitanlega eru. Jafnframt hefur reynslan sýnt að þegar hin meinta áhætta af því að eiga banka raungerist þá lendir áfallið alltaf á almenningi sem losnar ekki undan þeirri áhættu þó að bankar séu einkavæddir.

Upplýst umræða um það fyrirkomulag bankastarfsemi sem hingað til hefur viðgengist hefur aldrei farið fram og almenningi hefur aldrei verið gefinn kostur á að taka lýðræðislega afstöðu til þess, t.d. um það hvort ekki ætti að stofna samfélagsbanka, banka sem tæki hagsmuni neytenda fram yfir hagsmuni fjárfesta, eða hvort það ætti ekki að aðskilja fjárfestingarbanka og viðskiptabanka eins og t.d. Hagsmunasamtök heimilanna hafa barist fyrir næstum því allt frá hruni og Flokkur fólksins stendur svo sannarlega fyrir líka. Þvert á móti var fyrirkomulaginu sem nú gildir komið á fyrir löngu síðan af bankamönnum fyrir bankamenn á bak við luktar dyr, fjarri augsýn og án aðkomu almennings. Jafnframt hefur heimilunum ekki enn verið bætt það stórfellda tjón sem bankarnir hafa valdið þeim. Þvert á móti þá eiga sér nú stað einhverjir mestu fjármagnsflutningar sögunnar frá heimilunum til bankanna nema kannski að hruninu undanskildu.

Undanfarin tvö ár hafa stjórnvöld lagt blessun sína yfir aðferðir Seðlabankans sem leggur það eitt til í baráttunni gegn verðbólgunni að færa fé heimilanna til bankanna með grimmilegum hætti. Engar líkur eru á því að það eigið fé sem heimilin glata til bankanna komi samfélaginu til góða með nokkrum hætti, sem væri kannski einhver smáhuggun harmi gegn fyrir heimilin sem eiga engar varnir gagnvart þessu ofbeldi. Nei, þetta fé fer beint í hendur fjárfesta, þeirra sem eru að sópa öllu sem er einhvers virði undir sig á Íslandi.

En ríkisstjórnin heldur sig við sama heygarðshornið og ætlar að selja mjólkurkúna fyrir stundargróða í stað þess að njóta afurða hennar um ókomin ár. Það hefur sjaldan þótt mjög gáfulegt, ekki síst þegar hún gefur jafn vel og raun ber vitni. Einnig má ekki gleyma því að sem helstu lánveitendur heimila og fyrirtækja landsins hafa bankarnir gríðarleg völd yfir hag þeirra og velferð. Það hefur sýnt sig að þeir fara illa með þetta vald telji þeir það þjóna hagsmunum hagnaðar og ofurgróða. Það hefur því miður líka sýnt sig að heimilin hafa ekki átt neina vörn í nokkurri ríkisstjórn frá hruninu 2008.

Heimilum landsins hefur ekki enn verið bætt það stórfellda tjón sem þau urðu fyrir af hendi bankanna í kjölfar hrunsins og enn er litið á heimili fólks sem einhvers konar botnlausar veiðilendur fyrir bankana til að auka hagnað sinn. Á meðan þessi staða er óbreytt er afstaða Flokks fólksins til einkavæðingar bankanna það líka. Flokkur fólksins er því andvígur markmiði ofangreinds frumvarps eins og hann hefur verið andvígur öllum fyrri skrefum sem hafa verið tekin í sömu átt.