ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf.
Virðulegi forseti. Allt þetta kjörtímabil hafa hneykslis- og klúðursmál elt störf þessarar ríkisstjórnar. Eða ættu það kannski að vera ríkisstjórnir í fleirtölu? Við eigum kannski erfitt með að átta okkur á því. Fá þessara mála hafa verið jafn neyðarleg og klúðursleg og salan á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Hvort sem það snýst um mistök við að hámarka virði bankans eða að passa upp á gagnsæi eða fullkomlega einfalda hluti eins og tengsl aðila sem kaupa við aðila sem komu að ákvörðuninni, þá er þetta með því verra en þar sem ræðutíminn verður takmarkaður er sennilega betra að láta staðar numið í þessari upptalningu. Þrátt fyrir að ekki séu öll kurl komin til grafar hvað varðar síðustu bankasöluna sjáum við hér enn eina atlögu að því að selja skuli banka. Við höfum kallað eftir því að sett verði á fót rannsóknarnefnd til að skýra almennilega hvað það var sem gerðist síðast. Án þess getum við ekki myndað traust um þetta ferli.
Það virðist vera eina lausnin við vandamálum ríkisstjórnarinnar að selja banka, m.a. til að leysa úr fjármögnun ríkissjóðs. Vandamálið er að það gerum við bara einu sinni og því leysir það engan vanda, það bara frestar honum. Við leysum ekki fjármögnunarvanda ríkissjóðs með bankasölu. Með því höldum við hins vegar áfram að bregðast trausti almennings. Og talandi um bankasölu var það víst eini aðilinn sem lýsti yfir ánægju með fyrri sölu á bréfum í Íslandsbanka — Bankasýslan var sem sagt sátt við eigin verk. Með leyfi forseta, skemmtilega „on brand“ fyrir íslenska stjórnsýslu.
En talandi um Bankasýsluna, er það ekki beinlínis hennar hlutverk að fara með hlut ríkisins í bönkum? Miðað við nýjustu væringar í Landsbankanum þá gengur það ekki neitt sérstaklega vel. Maður hlýtur samt að spyrja sig: Til hvers er Bankasýslan ef ekki til að selja banka? Er stofnunin svo rúin trausti að henni er ekki einu sinni falið að framkvæma það sem er hennar lögboðna hlutverk? Til hvers er hún þá? Er henni ætlað að verða skúffustofnun? Getum við ekki frekar reynt að nýta það fjármagn eitthvað betur? Allar kannanir benda til þess að almenningur hvorki vilji selja bankann né treysti þessari ríkisstjórn til þess. Hvers vegna erum við þá að selja þessa eign þegar það er ljóst að vilji almennings snýst ekki um að selja bankann? Treystir ríkisstjórnin ekki áliti þeirra sem hún situr hér í umboði fyrir?
Nú vitum við að það hefur verið alveg sérstakt áhugamál Sjálfstæðisflokksins að selja banka. Þá virðist litlu máli skipta hvaða banka, það þarf bara að selja hann. En er það nóg? Dugar það hinum í ríkisstjórn, þessi eindregni áhugi, þrátt fyrir allt sem á undan er gengið? Ætti ekki að vera tækifæri til að róa þetta aðeins og staldra við? Liggur í alvörunni svona mikið á? Miðað við það sem hefur gengið á þarf að vera ljóst að þessi tillaga á engan rétt á sér. Ég tel að ríkisstjórn eða ríkisstjórnir hafi ekki umboð til slíkra grundvallarbreytinga þegar svona mikið rót hefur átt sér stað og blasir við að umboðið er ekki það sama og það var í upphafi kjörtímabils. Vilji þessi ríkisstjórn fá umboð til að fara í þessa framkvæmd ætti hún einfaldlega að endurnýja umboðið, ekki síst í ljósi nýjustu tíðinda þar sem ljóst er að meðferð þingsins á niðurstöðum kosninga stóðst einfaldlega enga skoðun. Það kann að vera sumum erfitt en að sjálfsögðu þurfum við að bera virðingu fyrir vilja almennings.
Nú vék hæstv. fjármálaráðherra að því í ræðu sinni hér áðan að það þyrfti að víkja frá hæfisreglu. Er það í alvörunni það sem við ætlum að bjóða þjóðinni upp á, að í staðinn fyrir að við tryggjum að rétt sé að þessu staðið ætlum við að leyfa okkur smá? Ef það er raunin þá bara kunnum við ekki að selja banka. Er það í alvörunni lausnin á vandanum að til að gera ekki eitthvað sem er bannað þá einfaldlega leyfum við það? Hversu lítil er virðingin fyrir verkefninu ef það er raunverulega lausnin?
Stóra vandamálið við fyrri sölur á hlut ríkisins hefur að mestu snúist um skort á trausti. Það er vandamál sem þarf að ávarpa. Að taka reglurnar úr sambandi er eingöngu til þess fallið að minnka enn það litla traust sem eftir er. Ef einhver kvartar yfir utanvegaakstri á viðkvæmum svæðum leysum við það vandamál með því að stoppa utanvegaaksturinn. Það er utanvegaaksturinn sem er vandamálið, ekki það að hann sé bannaður. Það sem við erum að horfa upp á hér er það að raunverulega stendur til að við leyfum utanvegaaksturinn og malbikum í hjólförin. Ég vildi að ég gæti haft trú á ferlinu. En það sem við þó vitum um fyrri sölur sýnir án nokkurs vafa að það er engin innstæða fyrir trausti á því. Freistnivandinn er einfaldlega of mikill. Við fengum að sjá á bak við tjöldin og við fengum að sjá hvað gerist þegar fólk býst við að það sem gerist komi ekki fyrir augu almennings. Við sáum tengda aðila kaupa, við sáum matskennd viðmið um hver hefði hæfi til þátttöku. Við fengum að sjá á bak við tjöldin. Það sem við sáum var ekki fallegt.
Hvað frumvarpið sjálft varðar er verið að selja bæði almenningi og fjárfestum, með leyfi forseta:
„Tilboðsbók A skal taka við sölutilboðum á föstu verði, sem skal nema meðalverði hlutabréfa í Íslandsbanka hf. síðustu 15 daga fyrir birtingu útboðslýsingar, með að hámarki 5% fráviki til lækkunar. Í tilboðsbókina skal vera heimilt að gera tilboð frá 100.000 kr. að 20.000.000 kr. Einungis einstaklingum skal vera heimilt að gera tilboð. Reynist nauðsynlegt að skerða áskriftir til að mæta eftirspurn skal það gert hlutfallslega, svo að allt hlutafé seljist. Þó skal ekki skerða áskriftir niður fyrir 2 millj. kr., nema slíkt reynist nauðsynlegt til að mæta eftirspurn og skal það þá gert hlutfallslega.“
Í næsta lið segir:
„Í tilboðsbók B skal vera heimilt að gera tilboð umfram 20.000.000 kr. Söluverð skal vera lægsta tilboðsverð sem nær heildarmagni útboðsins en lágmarksverð skal þó ekki vera lægra en fasta verðið í tilboðsbók A. Reynist nauðsynlegt að skerða áskriftir til að mæta eftirspurn skal það gert á grundvelli tilboðsverðs eingöngu. Reynist nauðsynlegt að skerða lægstu samþykktu tilboð skal það gert hlutfallslega.“
Af hverju lægsta? Af hverju skyldum við ekki taka hæsta verðinu sem býðst? Ég skil þetta ekki. Ég gæti mögulega skilið það ef við ætluðum að hlífa einstaklingum eitthvað. En hvers vegna skyldum við vera að vernda sérstaklega hagsmuni fjárfesta?
Forseti. Getum við ekki gert betur? Ef við miðum við það sem forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar segja hér þá er allt í lukkunnar velstandi. Því skyldum við þá vera að selja þennan hlut þegar bókstaflega allt mælir gegn því? Við höfum ekki rannsakað til hlítar hvað fór úrskeiðis síðast og til þess þyrftum við að skipa rannsóknarnefnd. Það er líka ljóst að almenningur vill ekki selja bankann. Síðasta sala kallaði á að núverandi forsætisráðherra segði af sér embætti fjármálaráðherra, til að verða utanríkisráðherra. Það eru samt bara rúmir sex mánuðir síðan en ekki sex ár. Almenningur treystir ríkisstjórninni ekki til að selja bankann. Það er hætt við að almenningi og fleirum verði gróflega misboðið með því að sleppa hæfisreglunum. Er fólk svo stjórnlaust að það ræður ekki við að fara að lögum og eru þá raunverulega engin úrræði við því? Áður en nokkuð annað er gert ættum við að leysa það vandamál. Við getum ekki boðið almenningi upp á þetta. Við getum ekki boðið upp á endurtekið efni þar sem illa verður farið með hlut almennings í bankanum.