ráðstöfun eignarhlutar í Íslandsbanka hf.
Forseti. Í ljósi sögu þessarar ríkisstjórnar, hvernig farið var með síðustu sölu á hlut í Íslandsbanka og hvernig fjármálaráðherra hraktist loks úr embætti og yfir í utanríkisráðuneytið — hann er reyndar orðinn forsætisráðherra þessarar ríkisstjórnar eftir nýjustu hrókeringar þrátt fyrir allt sem á undan er gengið. Ég hef ekki litið á það nýlega en yfir 40.000 undirskriftum var safnað og í því fólst vantraustsyfirlýsing á nýjan forsætisráðherra. Í ljósi þess hversu lítið traustið er — hv. þingmaður sagði að honum fyndist gott ef hægt væri að klára þessa bankasölu og jafnvel þótt það væri þessi ríkisstjórn. Mig langar bara til að spyrja: Telur hv. þingmaður stætt á því, telur hv. þingmaður að ríkisstjórnin hafi í raun og veru nægilegt traust og umboð til að klára þessa sölu? Í ljósi þess að það er verið að selja eignir þjóðarinnar, skiptir þá ekki máli að það ríki mikið traust til þeirra aðila sem taka að sér það verkefni að selja þessar eignir?