verndar- og orkunýtingaráætlun.
Virðulegi forseti. Hér var aldeilis farið yfir afrek Samfylkingarinnar (Gripið fram í.) í grænorkumálum og áður en maður byrjar ræðuna er farið að grípa fram í, þetta er auðvitað mjög viðkvæmt mál. Það sem við erum búin að gera á þessu kjörtímabili er nú miklu meira en gert hefur verið áður. Við kláruðum í fyrsta skipti rammaáætlun eftir níu ár. Samfylkingin greiddi ekki atkvæði með því. (Gripið fram í.) Samfylkingin greiddi ekki atkvæði með rammanum. Samfylkingin greiddi ekki atkvæði með rammanum, greiddi ekki atkvæði með rammanum (Gripið fram í.) og má bara lifa með því. Aflaukningarfrumvarpið sem núna skilar hundruðum megavatta, það var nú eitt af þeim frumvörpum sem ég lagði fram. Varmadælufrumvarpið sem sparar orku sem samsvarar 50.000 bílum. Við erum í þessum einföldunarverkefnum, sameiningum stofnana. Og já, ég mun koma með rammann á næstunni sem mun leggja til fleiri kosti í nýtingu. (Gripið fram í.) Já, það mun ég gera. Það hefur verið kynnt en hv. þingmaður er kannski ekki mikið að fylgjast með.
Úr því að hv. þingmaður er að stæra sig þá er það þannig að næststærsta orkufyrirtæki landsins heitir Orkuveita Reykjavíkur og undir forystu Samfylkingarinnar voru gefin skilaboð, mjög skýr, um að við þyrftum ekki á neinni grænni orku að halda. Alveg þangað til nýverið. Ég fagnaði stefnubreytingunni og áherslum nýrra stjórnenda. En Samfylkingin sagði við alla, þjóðina, að við þyrftum ekki meiri græna orku og tók síðan arð út úr fyrirtækinu og byggði húsið upp á Höfða aftur, það er búið að byggja það tvisvar. Ekki var farið í nokkurn skapaðan hlut og í ofanálag var það bara sagt mjög skýrt, sem er einfaldlega ósatt, og við erum í vandræðum út af því núna, að það þyrfti ekki græna orku. (Forseti hringir.) Og svo studdi Samfylkingin ekki rammann.