154. löggjafarþing — 96. fundur,  16. apr. 2024.

verndar- og orkunýtingaráætlun.

900. mál
[19:50]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég held að vandinn sé kannski sá að megavött er glataður mælikvarði í þessum lögum. Megavatt er bara mælikvarði á framleiðslugetu orkuverðs. Það sem við viljum ná utan um með þessum ákvæðum í lögum um rammaáætlun er einhvers konar áhrifamat þannig að þær virkjanir sem mestu áhrifin hafi rati í þetta ferli og aðrar geti fengið eitthvert léttara ferli. Þá getur það oft verið þannig að virkjun sem er 8 MW getur valdið meiri skaða en 20 MW virkjunin við hliðina. Þetta er kannski eitthvað sem við getum skoðað aðeins, gert atrennu að umræðu um það inni í nefndinni hvernig væri hægt að ná þessum viðmiðum nær einhverju áhrifamati frekar en bara afkastamati virkjunar. Síðan er í rauninni ný tegund af áhyggjum sem kemur fram í umsögn Landverndar á fyrri stigum þessa máls í samráðsgátt stjórnvalda þar sem er bent á að jú, það er þessi lenska hjá virkjunaraðilum að finna upp á 9,9 MW vatnsaflsvirkjunum en þá eru þær bara stak. Sá möguleiki opnast hins vegar með vindorkuver að það verði einhvers konar bútasaumur þannig að það verði heill haugur af 9,9 MW vindorkuverum nálægt hvert öðru sem verður síðan allt í einu orðið að einhverjum risastórum vindmylluskógi upp á eitthvað miklu meira en stærðarmörkin sem miðað er við í lögum um rammaáætlun. Við þurfum að skoða þetta og athuga hvort þessi gullhúðun ráðherrans eigi erindi inn í lagasafnið eða ekki.