Menntasjóður námsmanna.
Virðulegur forseti. Um þetta frumvarp bárust fjórar umsagnir í samráðsgátt frá Bandalagi háskólamanna, BHM, Stúdentaráði Háskóla Íslands, umboðsmanni skuldara og Hagsmunasamtökum heimilanna. Allt eru þetta ítarlegar umsagnir sem allar innihalda ábendingar um eitthvað sem betur mætti fara. Það vekur því furðu að í 5. kafla greinargerðar frumvarpsins sem fjallar um samráð eru þær allar afgreiddar með eftirfarandi orðum: „Fjórar umsagnir bárust, sem ekki kölluðu á breytingar á frumvarpinu.“ Það er eiginlega dónalegt hvernig umsagnirnar eru afskrifaðar á svona snubbóttan hátt og hunsaðar án þess að minnst sé á innihald þeirra, auk þess sem þessi fullyrðing stenst einfaldlega enga skoðun.
Það má velta fyrir sér til hvers verið sé að kalla eftir samráði ef þetta er afgreiðslan. Þarna eru hagsmunaaðilar og baráttusamtök fyrir réttindum lánþega að gefa álit sitt. Þetta eru aðilar sem þekkja þessi mál betur en flestir aðrir og það er því slæmt að raddir þeirra séu hunsaðar með þeim hætti sem hér er án þess að ávarpa með nokkrum hætti áhyggjur þeirra eða ábendingar um það sem betur mætti fara. Það er m.a. ljóst að Bandalagi háskólamanna, BHM, þykir afraksturinn sem kemur fram í þessu frumvarpi vera frekar rýr en í umsögn þeirra stendur, með leyfi forseta:
„Í ljósi langs aðdraganda, yfirgripsmikilla athugasemda frá hagaðilum og þeim vanköntum sem reifaðir eru í skýrslu ráðherra um endurskoðun á Menntasjóðnum furða BHM og LÍS sig á takmörkuðu umfangi þeirra aðgerða sem boðaðar eru í frumvarpinu. Ljóst er að tilefni er til mun viðameiri aðgerða og ekki síst í ljósi þeirra áskorana sem framundan eru í kjarasamningum háskólamenntaðra á opinbera markaðnum. BHM og LÍS hvetja stjórnvöld til að stíga metnaðarfyllri skref til skamms tíma og stefna að endurskoðun á námslánakerfinu á breiðum grunni til lengri tíma. Skilvirkt námslánakerfi vinnur með markmiðum stjórnvalda um mannauðsdrifið hagkerfi til framtíðar.“
Svo mörg voru þau orð. Ég vona svo sannarlega að hv. allsherjar- og menntamálanefnd taki meira tillit til umsagna sem berast en ráðuneytið gerði við vinnslu þessa frumvarps.
En í þessari ræðu minni ætla ég að fjalla um tvennt, annars vegar um niðurfellingu ábyrgðarmannakerfisins, sem ég fagna, og hins vegar að ekki sé felld niður undanþága námslána frá áhrifum gjaldþrotaskipta, sem ég mótmæli harðlega. Það að felld sé niður undanþága námslána frá áhrifum gjaldþrotaskipta samkvæmt 26. gr. laganna hefur verið baráttumál Hagsmunasamtaka heimilanna frá því að lögin voru sett 2020. Þessa grein laganna þarf einfaldlega að fella brott og fyrir því eru sterk rök. Tveggja ára fyrningarreglan í 165. gr. laga um gjaldþrotaskipti var sett árið 2010 í kjölfar bankahrunsins og hefur reynst mikilvæg réttarbót enda er gjaldþrot oft eina leiðin sem einstaklingar hafa út úr óviðráðanlegum skuldavanda. Með 26. gr. laga um Menntasjóð námsmanna var vegið að því úrræði og þar með grafið verulega undan réttarstöðu skuldara. Sjóðurinn er í raun eini kröfuhafinn sem hefur ekki viljað una slíkri fyrningu og hefur höfðað fjölda dómsmála til að reyna að slíta henni en tapað þeim öllum. Í öllum dómum Hæstaréttar Íslands í þeim málum var því hafnað að sjóðurinn hefði sérstaka hagsmuni umfram aðra kröfuhafa af því að kröfur hans fyrndust ekki samkvæmt ákvæðinu. Ákvæði 26. gr. menntasjóðslaga ganga í berhögg við þessar afgerandi niðurstöður Hæstaréttar Íslands og því ber að fella þau brott og algjörlega ótrúlegt að þau hafi verið fest í lög árið 2020 þvert á fjölmarga dóma.
Hagsmunasamtök heimilanna hafa fengið á sitt borð fjölda mála þar sem einstaklingar sem hafa neyðst til að fara í gjaldþrotaskipti sitja enn uppi með námslánaskuldir sem hindra þá í því að byggja upp líf sitt að nýju. Ég ætla að leyfa mér að lesa tvær af þeim frásögnum sem ég hef persónulega fengið til mín um áhrif þessarar skelfilegu greinar, 26. gr. Sú fyrsta kom frá konu en það var farið hryllilega með hana og eiginmann hennar eftir hrun í skjóli hinna svokölluðu Árna Páls-laga með þeim afleiðingum að þau misstu heimili sitt. Þótt sú saga ætti svo sannarlega að heyrast í þessum sal passar hún ekki undir þessum lið. En svo skrifar hún:
Mig langar að spyrja þig ef þú veist hvort einhverjum hafi tekist að semja við LÍN. Mér er búið að takast að hreinsa mig af flestu en eftir hanga námslánin. Nokkrar milljónir. Maðurinn minn er ábyrgðarmaður. Á meðan það er svoleiðis er ógjörningur fyrir okkur að eiga neitt, hvorki bíl né íbúð sem við ættum í raun alveg að geta keypt. Ég veit bara ekki hvort það sé hægt að semja. Þetta er auðvitað hjá lögfræðistofu, ég einhvern veginn þori ekki að fara í þetta einu sinni og heyri bara að LÍN semji ekki. Afsakaðu ef ég er að trufla þig.
Afsakaðu ef ég er að trufla þig, segir kona sem í örvæntingu er að leita svara þegar ekkert er fram undan nema svartnættið.
Hérna er önnur frásögn, aðeins lengri, með leyfi forseta:
Árið 2012 hóf ég háskólanám, þá tæplega fertug, nýlega fráskilin og stóð ein uppi með börnin mín þrjú. Mig hafði lengi dreymt um að mennta mig en fljótlega eftir að ég hóf það nám byrjuðu mínir fjárhagserfiðleikar. Fljótlega eftir að námið hófst fékk ég fyrstu stefnuna frá LÍN um að námslán fyrrverandi eiginmanns míns væru fallin á mig. Stuttu seinna kom svo önnur stefna vegna láns frá bankanum. Sá fyrrverandi sumsé stakk af frá námsláni og bankaláni sem ég var í ábyrgð fyrir, samtals 11 milljónum sem voru uppreiknaðar í eitthvað enn meira vegna vanskila og innheimtukostnaðar. Ég reyndi að standa í þessu basli í einhvern tíma en með þrjú börn og í viðbót við þessar skuldir og nýtekið námslán sem ég tók sjálf gafst ég upp tæpum fjórum árum síðar, missti húsið mitt, bílinn minn, kennitöluna mína og möguleikann á að klára námið mitt en þá átti ég bara eftir ritgerðina. Minn fyrrverandi hafði farið fyrst í greiðsluaðlögun og svo í gjaldþrot með aðstoð umboðsmanns skuldara sem greiddi fyrir hann skiptakostnaðinn. Ég reyndi þá leið en var synjað um aðstoð þar sem ég hafði ekki sótt um vægari úrræði fyrst. Ég sótti því um vægari úrræði en fékk aftur synjun á þeim forsendum að skuldirnar væru það miklar að ég gæti aldrei staðið undir þeim. Ég var því föst. Á næstu árum tókst mér að finna mér vinnu og skrapa saman þeirri upphæð sem þurfti til að geta óskað sjálf eftir gjaldþroti. Það voru skref sem voru ótrúlega þung að taka. En loksins þegar það tókst þá var nýbúið að breyta lögum Menntasjóðs um fyrningarfrest svo ég er strand. Menntasjóður sendir mér reglulega stefnu og viðheldur kröfunni og ég sé aldrei fram á að losna úr þessu. Ég er á sextugsaldri, á ekki neitt, kem aldrei til með að eignast neitt og sé bara ekki fram úr þessu og þess vegna er ég að velta fyrir mér þessu ákvæði um endurskoðun á þessum lögum.
Þetta er skelfileg staða sem 26. gr. laga um Menntasjóð námsmanna setur fólk í. Fólki er haldið í greipum heljar um ókomna tíð. 26. gr. verður að fella niður og ég mun leggja fram breytingartillögu um það.
En nú skal nefnt það sem vel er gert. Ég fagna því mjög að í ofangreindum frumvarpsdrögum sé það lagt til að ábyrgðarmannakerfi námslána verði fellt niður að fullu. Ábyrgðarmannakerfið er barn síns tíma og löngu tímabært að það hljóti sinn náttúrlega dauðdaga. Þegar mál vegna skuldavanda einstaklinga koma inn á borð Hagsmunasamtaka heimilanna er, eins og áður var sagt, mjög algengt að þar á meðal séu skuldir vegna námslána. Mörg dæmi eru um að slíkan vanda sé hægt að rekja til ábyrgðar á námslánum sem hafa fallið á viðkomandi vegna greiðsluerfiðleika lántaka og erfiðleikar eins hafi þannig leitt til erfiðleika annars.
Frumvarpsdrögin vekja þó upp spurningar um stöðu ábyrgðarmanna sem þegar hefur verið gengið að vegna greiðslufalls á námslánum hingað til eða a.m.k. frá gildistöku núgildandi laga um Menntasjóð námsmanna, nr. 60/2020. Til að gæta jafnræðis hlýtur að verða að gera þá jafnsetta við þá sem munu njóta góðs af þeirri breytingu sem er lögð til í frumvarpsdrögunum. Ef ekki með því að endurgreiða þær ákveðnu kröfur sem hafa verið innheimtar hjá þeim verður a.m.k. að sjá til þess að fjárnám sem kunna að hafa verið gerð hjá þeim og vanskilaskráningar ásamt neikvæðum áhrifum þeirra á lánshæfismat viðkomandi einstaklinga falli að sama skapi niður. Ég treysti því að hv. allsherjar- og menntamálanefnd hugi að réttarstöðu þessa hóps.
Svo það komist örugglega til skila vil ég í lok þessarar ræðu minnar ítreka að það verður að fella niður undanþágur námslána frá áhrifum gjaldþrotaskipta 26. gr.. Undanþágan námslána frá fyrningartíma í kjölfar gjaldþrotaskipta er í andstöðu við meginreglu skuldaskilaréttar um jafnræði kröfuhafa. Auk þess felur hún í sér mismunun milli skuldara eftir tegund skulda og hverjum er skuldað sem kann að brjóta í bága við jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar. Stytting fyrningar og sérstök skilyrði fyrningarslita í kjölfar gjaldþrotaskipta, sem voru lögfest með lögum nr. 142/2010, hafa reynst mikilvæg úrræði fyrir einstaklinga sem geta ekki fundið aðra leið út úr óviðráðanlegum skuldavanda. Jafnframt hefur Hæstiréttur Íslands ítrekað hafnað því að Menntasjóður námsmanna, sem áður hét Lánasjóður íslenskra námsmanna, hafi sérstaka hagsmuni umfram aðra kröfuhafa af því að kröfur hans fyrndust ekki samkvæmt ákvæðum laga um gjaldþrotaskipti.
Enn fremur hefur komið í ljós að Menntasjóður námsmanna virðist túlka ákvæðið þannig að það eigi einnig við um námslán sem voru tekin í gildistíð eldri laga þegar engin slík undanþága var til staðar en verulegur vafi leikur á því hvort slík afturvirkni standist enda hefur hún íþyngjandi áhrif. Hæstiréttur hefur enda dæmt ítrekað að þannig lög séu andstæð stjórnarskrá ef þau skerða stjórnarskrárvarin mannréttindi með afturvirkum hætti, líkt og gert var í öryrkjadómi tvö, dómnum um Árna Páls-lögin og dómi Landsréttar í máli sem Flokkur fólksins höfðaði þegar Alþingi reyndi að skerða ellilífeyri með afturvirkum hætti.
Samkvæmt framangreindu blasir við að ákvæði 26. gr. laga um Menntasjóð námsmanna verður að falla brott.