154. löggjafarþing — 96. fundur,  16. apr. 2024.

fiskveiðiviðræður milli Íslands og Grænlands varðandi aðgang til makrílveiða á Norðaustur-Atlantshafi á árinu 2024.

929. mál
[21:26]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P):

Forseti. Nú velta fundarmenn því eflaust fyrir sér hvers vegna ég skyldi hafa áhuga á makríl en það skýrir málið eflaust fyrir nærstöddum þegar ég nefni það að makríllinn er nefnilega farandfiskur, en eins og mörg vita hef ég sérstakan áhuga á ferðafrelsi. Norður-Atlantshafsmakríllinn hefur umfangsmikið göngumynstur í Norður-Atlantshafi sem nær frá efnahagslögsögu Bretlands og Írlands, sem nú er skilgreind sem hluti af efnahagslögsögu Evrópusambandsins — eða var, allt orðið mjög flókið núna, alla leið norður í efnahagslögsögu Íslands, Noregs og Færeyja. Með stofninn sem er innan svæða sem eru undir yfirráðum fleiri en eins strandríkis þurfa þessi ríki að leitast við að koma sér saman um stjórnun stofnsins. Þetta er skv. 1. mgr. 63. gr. hafréttarsamnings Sameinuðu þjóðanna en í þeim samningi segir, með leyfi forseta:

„Þar sem sami stofninn eða stofnar tengdra tegunda eru í sérefnahagslögsögu tveggja eða fleiri strandríkja skulu þessi ríki, annaðhvort beint eða fyrir milligöngu viðeigandi undirsvæðis- eða svæðisstofnana, leitast við að koma sér saman um nauðsynlegar ráðstafanir til að samræma og tryggja verndun og þróun þessara stofna …“

Hafréttarsamningur Sameinuðu þjóðanna er alþjóðlegur samningur um réttindi og skyldur ríkja við nýtingu hafsvæða sem saminn var á þriðju ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um hafréttarmál sem haldin var frá 1973–1982. Í dag eru 156 ríki auk Evrópusambandsins aðilar að samningnum. Hann nær yfir viðskipti með sjávarafurðir, umhverfismál, nýtingu sjávarafla, auk þess að skilgreina landgrunnsréttindi, landhelgi og efnahagslögsögu ríkja með strönd við sjó.

Sagan um Ísland og makrílinn hófst skömmu eftir aldamótin þegar atlantshafsmakríllinn fór skyndilega að berast í auknum mæli inn á Íslandsmið. Þetta mál vakti áhuga minn þegar ég var við nám í Belgíu frá 2012 til 2013 þegar Evrópusambandið var að hóta að beita íslensk stjórnvöld og beita Ísland refsiaðgerðum fyrir ofveiði á kvóta sem ekki var búið að semja um skiptingu á. Þetta var sem sagt þannig að þarna breyttist ferðamynstur makrílsins. Makríllinn fer til að fóðrast í norðurhöfum seinni hluta ársins og heldur sig í kringum Hjaltlandseyjar og Noreg að vetri til. Hann heldur síðan norður fyrir sumarið með u.þ.b. fjórða hluta stofnsins sem kemur inn í íslensku efnahagslögsöguna á fæðutíma sínum og borðar, kemur og borðar hjá okkur. Hugsanlega er það að það eru einhverjar breytingar á fæðuframboði, hækkaður vatnshiti, loftslagsbreytingar eða bara aukin stærð stofnsins, vegna loftslagsbreytinga mögulega, sem gerði það að verkum að makríllinn jók viðveru sína gríðarlega mikið á norðausturhorninu og virðist nú vera á Íslandsmiðum allt árið um kring. Um þrisvar sinnum meira fannst af makríl í íslenskri efnahagslögsögu árið 2010 en árið 2009. Afli á íslensku og færeysku hafsvæði var um 21% af tilkynntum afla árið 2010. En fyrir þetta voru íslensk skip ekki að veiða mikið af makríl og aðallega sem aukaafurð, þar sem hið hefðbundna veiðisvæði makrílsins var við Hjaltlandseyjar og undan vesturströnd Skotlands og Írlands. Með breytingum á því sem kallað er göngumynstur makrílsins er hann orðinn þriðja mest veidda fisktegundin á íslenskum skipum.

Þó að ég hafi verið að kynna mér þetta mál fyrir hvað, 12 árum síðan, þá kom þessi frétt í nóvember árið 2023, með leyfi forseta:

„Strandríkin“ — þessi strandríki — „eru sammála um að leggja áherslu á að komast að samkomulagi um skiptingu norsk-íslensku síldarinnar vegna sérlega slæmrar stöðu stofnsins.“

Það hefur ekki enn náðst samkomulag um skiptingu stofnanna og vegna þess að ekki liggur fyrir samkomulag um skiptingu hlutdeildar í heildaraflamarki milli ríkjanna hafa ríkin sjálfstætt gefið út kvóta til sinna skipa á grundvelli þess hluta sem þau segjast eiga rétt á að veiða. Vegna þessa hafa stofnanir verið veiddir langt umfram ráðgjöf.

Frá árinu 1999 var ákvarðanataka um makrílstofninn sameiginlega í höndum Evrópusambandsins, Noregs og Færeyja. Ísland hafði þá ítrekað óskað eftir að taka þátt í þessari stjórnun stofnsins innan Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar allt frá árinu 1999 en var upphaflega hafnað af hinum ríkjunum. Frá árinu 2008 hefur Ísland því úthlutað sér einhliða hlut í heildarafla makríls samkvæmt ráðleggingum Alþjóðahafrannsóknaráðsins. Í kjölfar breytinga á göngumynstri makrílsins hleyptu ríkin Íslandi loksins að borðinu árið 2010 en því miður hafa þessi ríki ekki enn náð samkomulagi um hlut hvers ríkis í aflamarkinu. Þess í stað hafa ríkin sem áður sagði einhliða sett sér kvóta með þeim afleiðingum að makrílstofninn í Atlantshafinu hefur orðið fyrir ofveiði ef marka má vísindarannsóknir.

Árið 2010 náðu Evrópusambandið og Noregur tvíhliða samkomulagi sem gaf Evrópusambandinu 62% af aflamarki og Noregi u.þ.b. 28% og skildi hin ríkin eftir með 10%. Þessir tveir aðilar voru þannig að semja um hlutdeild aðila sem sátu ekki við það borð en samanlagður einhliða kvóti fyrir Ísland og Færeyjar, sem áttu að vera inni í þessum 10%, var u.þ.b. 23%.

Ísland er á meðal þekktustu fiskveiðiþjóða heims og þrátt fyrir smæð má segja að þegar kemur að alþjóðlegri fiskveiðistjórn sé okkar litla eyja stórveldi. Vegna mikilvægis iðnaðarins fyrir þjóðarbúið leggur Ísland mikinn metnað í að stýra greininni á arðbæran hátt og er víða talið hafa tekist það. Þannig hefur Ísland haft gríðarlega mikil áhrif á þessu sviði í alþjóðlegu samhengi.

Í 61. gr. hafréttarsamnings Sameinuðu þjóðanna er fjallað um þessa verndun hinna lífrænu auðlinda, með leyfi forseta:

„1. Strandríkið skal ákveða leyfilegan afla hinna lífrænu auðlinda í sérefnahagslögsögu sinni.

2. Strandríkið skal tryggja með viðeigandi verndunar- og stjórnunarráðstöfunum, á grundvelli bestu vísindalegu niðurstaðna sem því eru tiltækar, að tilveru hinna lífrænu auðlinda í sérefnahagslögsögunni sé ekki stofnað í hættu með ofnýtingu. Eftir því sem við á skulu strandríkið og þar til bærar alþjóðastofnanir, hvort sem þær eru undirsvæðis-, svæðis- eða heimsstofnanir,“ — þetta er dálítið gamall samningur — „starfa saman að þessu marki.

3. Þessar ráðstafanir skulu einnig miða að því að stofnum nýttra tegunda sé haldið í eða komið aftur upp í stærð sem getur gefið af sér hámarkslangtímaafla, með þeim takmörkunum sem felast í viðkomandi umhverfis- og efnahagsaðstæðum, m. a. efnahagslegum þörfum strandveiðistöðva og sérþörfum þróunarríkja, og skal hafa hliðsjón af veiðiháttum, innbyrðis tengslum stofna og almennt viðurkenndum alþjóðlegum lágmarksreglum […]

4. Þegar strandríkið gerir þessar ráðstafanir skal það taka tillit til áhrifa þeirra á tegundir sem eru tengdar eða háðar nýttum tegundum svo að stofnum þessara tengdu, eða háðu tegunda sé haldið ofan við eða komið aftur upp fyrir mörk þar sem viðkomu þeirra kann að verða alvarlega ógnað.“

Forseti. Í langan tíma hefur lítið sem ekkert gengið í samningaviðræðunum og eins og ég nefndi hérna áðan hótaði Evrópusambandið um árabil að beita Ísland refsiaðgerðum, sem var augljóslega ekki til þess fallið að liðka fyrir þeim viðræðum, auk þess sem það hefði falið í sér brot á alþjóðalögum þar sem Evrópusambandið hafði engan lagagrundvöll í þjóðarétti til að beita neinum refsiaðgerðum um atriði sem ríkjum, samkvæmt alþjóðalögum, ber eingöngu að koma sér saman um. Það er náttúrlega ekki þannig að tveir aðilar af mörgum geti bara tekið ákvarðanir fyrir alla og ætli síðan að refsa hinum fyrir að fallast ekki á það.

Þetta var kannski örlítill útúrdúr. Þessi deila er ákaflega áhugaverð og það er áhugavert hversu lengi hefur verið reynt að leitast við að ná einhvers konar samkomulagi. Það verður fróðlegt að sjá hvernig málin þróast á næstunni en í öllu falli tel ég tilefni til að fagna þessu samkomulagi sem við erum að staðfesta hér með þessari þingsályktunartillögu.