úrvinnslugjald.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingar á lögum um úrvinnslugjald, nr. 162/2002. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar sem miða að því að auka áreiðanleika og skilvirkni í tengslum við álagningu úrvinnslugjalds og styðja við þær breytingar sem lög nr. 103/2021, oft nefnd hringrásarlögin, fólu í sér með það fyrir augum að skapa skilyrði fyrir myndun hringrásarhagkerfis hér á landi. Veigamestu breytingarnar snúa að því að gera nauðsynlegar uppfærslur á viðauka XVIII við lögin eða svokölluðu umbúðamódeli. Samkvæmt lögum um úrvinnslugjald skulu framleiðendur og innflytjendur að meginreglu gefa upp þyngd og tegund umbúða utan um vörur. Í þeim tilvikum þegar staðfestar upplýsingar um umbúðir fást ekki er framleiðendum og innflytjendum heimilt að greiða úrvinnslugjald af umbúðum á grundvelli upplýsinga um meginsöluumbúðir í samræmi við reiknireglur sem koma fram í viðauka XVIII við lögin. Með lögum nr. 103/2021, sem tóku að fullu gildi þann 1. janúar 2023, voru fleiri tegundir umbúða felldar undir framleiðendaábyrgð og látnar sæta úrvinnslugjaldi. Breytingarnar leiddu af sér nauðsynlega uppfærslu á viðauka XVIII við lög um úrvinnslugjald og var það gert með lögum nr. 127/2022, sem tóku gildi þann 1. mars 2023.
Reynslan síðastliðið ár af framkvæmd umbúðamódelsins í viðauka XVIII hefur dregið fram þörf á að uppfæra viðaukann og þessar reiknireglur. Í fyrsta lagi er lagt til að við viðaukann bætist inngangsorð sem útskýri virkni hans, þ.e. útreikning álagningarinnar. Þetta er lagt til með hliðsjón af nýlegri útvíkkun umbúðamódelsins, auknum kröfum um gegnsæi við ákvörðun skatta og gjalda sem og ábendingum fjármála- og efnahagsráðuneytisins.
Í öðru lagi er lögð til breyting sem felur í sér að bætt er við valmöguleikum um meginsöluumbúðir fyrir tiltekið tollskrárnúmer í viðaukanum og gerðar breytingar á hlutfallstölum milli umbúðaefna. Innflytjendur og Skatturinn hafa bent á að valmöguleika um umbúðir hafi vantað í ákveðnum tilvikum. Breytingin er til þess fallin að auka valmöguleika innflytjenda og þannig tryggja að þeir sem nýta reiknireglurnar geti valið þær meginsöluumbúðir sem sannarlega eiga við.
Í kjölfar gildistöku viðauka XVIII komu í ljós vandkvæði í þeim tilvikum þegar innflytjendur hafa ekki upplýsingar um meginsöluumbúðir vöru þar sem reiknireglur viðauka XVIII gera ráð fyrir þeim upplýsingum. Til að mæta þeim vanda sem þá skapast er með frumvarpi þessu lagt til að sett verði tímabundin heimild til að ákvarða úrvinnslugjald í slíkum tilvikum miðað við líklegustu tegund söluumbúða út frá tollflokkun viðkomandi vöru. Lagt er til að ákvæðið gildi til 1. janúar 2026 til að gefa innflytjendum tíma til að aðlaga sig að kröfum um tilgreiningu umbúða.
Með frumvarpinu eru einnig lagðar til breytingar á ákvæðum laganna um úrvinnslugjald á ökutæki. Kveðið verður með skýrari hætti á um greiðanda gjaldsins, grundvöll þess og gjalddaga. Til að tryggja að álagning úrvinnslugjalds leggist á framleiðendur og innflytjendur í samræmi við framleiðendaábyrgð en ekki á skráðan eiganda er talið mikilvægt að skerpa á ákvæðum laganna hvað þetta varðar þar sem álagning á sér stað við nýskráningu en ekki tollafgreiðslu eins og jafnan er við álagningu úrvinnslugjalds.
Aðrar breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu lúta m.a. að upplýsingaskyldu gjaldskyldra aðila, tillögu um kæruheimild vegna álagningar úrvinnslugjalds á ökutæki og lagfæringum á tollskrárnúmerum og orðalagi í lögunum.
Ég hef, virðulegi forseti, rakið hér meginefni frumvarpsins en vísa að öðru leyti til frumvarpsins sjálfs og greinargerðar sem því fylgir og legg til að frumvarpinu verði að lokinni 1. umræðu vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar.