úrvinnslugjald.
Virðulegi forseti. Nú er árangurinn af margra ára átaki til rafbílavæðingar að koma í ljós, af þeim ívilnunum sem farið hafa tugir milljarða í. Hefði bara smá hluti þeirra ívilnana farið í að t.d. efla almenningssamgöngur þá hefði verið hægt að stórbæta þjónustu almenningssamgangna við íbúa höfuðborgarsvæðisins sem hafa — og þau framlög sem hafa farið frá ríkinu til þess hafa ekki einu sinni haldið í við verðlag. Nú fór svo að stór hluti þessara ívilnana er ekki lengur fyrir hendi og við það varð bara algjört hrun í rafbílasölu. Þegar við skoðum tölfræðina þá hefur hlutur rafbíla minnkað gríðarlega mikið og þeir eru ekki lengur allsráðandi í nýjum bílum heldur blasir við allt önnur mynd.
Mér sýnist að þarna hafi bara ákveðnar skýjaborgir verið reistar því þetta ferli og þessi þróun og þessar fyrirætlanir eru bara engan veginn sjálfbærar. Því hefði ég velt fyrir mér hvort þessi gríðarlega fjárfesting hefði ekki skilað sér betur með því að nýta fjármagnið í aðra þætti. Það sést líka í því að þegar við tökum upp þetta kílómetragjald um áramótin þá dregur það enn frekar úr samkeppnishæfni rafmagnsbílanna. En nú á að bæta um betur og svo virðist sem að með því að setja skilagjald á rafhlöður rafmagnsbílanna þá verði bætt við enn einum útgjaldaliðnum sem gerir þá endanlega út af við samkeppnishæfni rafbílanna. Þó að það sé alveg ljóst að rafbílar þurfi að taka sinn þátt í rekstri vegakerfisins og mögulega sé eðlilegt að setja skilagjald á rafhlöður þá raðast þetta inn mjög þétt og það er með ólíkindum. Það hlýtur að vera nauðsynlegt, í ljósi þess hversu mikilvæg orkuskiptin eru í áætlunum ríkisstjórnarinnar, að reyna að standa vörð um þann árangur, nema þetta þýði að nú eigi að venda kvæði í kross og setja hressilega innspýtingu í almenningssamgangnakerfið og í raun staðfesta orðinn hlut, að þessi hugmynd, að ætla að takast á við loftslagsvandann með því að fjölga hér einkabílum, gengur bara ekki upp því að rafmagnsbílarnir eru bara hrein viðbót. En mig grunar sterklega að það standi ekki til og að áfram verði skilað auðu og árangurinn verði í samræmi við það.