154. löggjafarþing — 96. fundur,  16. apr. 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[21:44]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á ýmsum lögum er varða gjaldtöku Orkustofnunar vegna leyfisveitinga og eftirlits stofnunarinnar. Megintilgangur frumvarpsins er að mæla fyrir um heimildir til töku þjónustugjalda vegna vinnu Orkustofnunar við afgreiðslu leyfisumsókna vegna auðlindanýtingar og vegna eftirlits með því að leyfishafar uppfylli skilyrði leyfisveitinga. Með gjaldtöku í samræmi við veitta þjónustu má auka skilvirkni leyfisveitinga og stuðla þannig að hröðun orkuskipta.

Frumvarpið er samið í umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu að höfðu samráði við Orkustofnun. Áform um lagasetninguna og drög að frumvarpi voru kynnt til umsagna í opnu samráði á samráðsgátt stjórnvalda. Í samráðskafla greinargerðarinnar er greint frá umsögnunum og viðbrögðum við þeim.

Orkustofnun er falið eftirlits- og leyfisveitingarhlutverk í ýmsum lögum sem varða nýtingu auðlinda. Helst ber að nefna lög um eignarrétt íslenska ríkisins að auðlindum hafsbotnsins, nr. 73/1990, lög um rannsóknir og nýtingu á auðlindum í jörðu, nr. 57/1998, raforkulög, nr. 65/2003, og vatnalög, nr. 15/1923. Leyfisveitingar samkvæmt þessum lögum voru í höndum ráðherra fram að gildistöku laga nr. 131/2011, um breytingu á ýmsum lögum vegna fullgildingar Árósasamningsins, en með þeim voru gerðar ýmsar breytingar á ákvæðum laga sem vörðuðu veitingu og endurskoðun á afturköllun leyfa vegna framkvæmda sem háðar voru umhverfismati. Þá var leyfisveitingarhlutverk fært frá ráðherra til viðeigandi undirstofnunar. Þá tók Orkustofnun við hlutverki ráðherra sem leyfisveitandi samkvæmt áðurgreindum lögum er varða auðlindanýtingu. Þessari yfirfærslu fylgdu ekki heimildir til gjaldtöku vegna leyfisveitinga eða eftirlits Orkustofnunar, að undanskildum vatnalögum þar sem kveðið er á um heimild til töku þjónustugjalds í 146. gr.

Á þeim tíma sem liðið hefur frá yfirfærslu leyfisveitinga frá ráðherra til Orkustofnunar árið 2011 hafa umrædd lög staðið óbreytt á sama tíma og umsvif og verkefni og þróun í stjórnsýslu málaflokksins hefur aukist. Brýnt er að framangreind lög feli í sér lagastoð fyrir heimild Orkustofnunar til töku þjónustugjalda í samræmi við vinnu stofnunarinnar við undirbúning og afgreiðslu leyfisveitinga og eftirlit með þeim.

Virðulegi forseti. Það er mikilvægt að öll gjaldtaka hins opinbera sé skýr og gagnsæ og að tryggt sé að gjaldtaka sé í samræmi við veitta þjónustu og skili aukinni skilvirkni við afgreiðslu mála. Því er í fyrirliggjandi frumvarpi leitast við að orða með skýrum hætti hvaða þjónustu viðkomandi gjöld eigi að standa undir. Til að tryggja samræmi gjalda við veitta þjónustu skal byggt á rekstraráætlun þar sem þau atriði sem ákvörðun gjalds byggist á skulu rökstudd. Útfærsla gjaldskrárinnar er lykilatriði hvað það varðar en lagt er til að hún sé háð staðfestingu ráðherra. Að auki vil ég taka fram að til þess að við náum þeim markmiðum sem sett hafa verið fram í loftslagsmálum og um kolefnishlutleysi er grundvallaratriði að allir ferlar séu skilvirkir, einfaldir og árangursríkir. Allar þær breytingar sem ráðuneytið mitt vinnur nú að, svo sem varðandi stofnanaskipulag, vindorku og þetta mál sem hér um ræðir, eru liður í því stóra verkefni.

Virðulegi forseti. Ég hef rakið hér meginefni frumvarpsins. Ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni 1. umræðu vísað til hv. atvinnuveganefndar.