154. löggjafarþing — 96. fundur,  16. apr. 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[21:50]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Eins og kom fram hjá hv. þingmanni þá held ég að það sé almennur samhljómur um þetta. Við höfum farið í mikla vinnu varðandi einföldun leyfisveitingarferla og skoðað sérstaklega Orkustofnun og verkferla þar með það að markmiði að stofnunin sé með í forgangi kjarnastarfsemi sína, sem er lykilatriði. Við höfum líka kallað eftir hjá Orkustofnun öðrum hugmyndum um það hvernig við getum verið með einfalt, skilvirkt og gagnsætt fyrirkomulag þegar kemur að þjónustugjöldum. Þetta er nokkuð sem við höfum auðvitað reynslu af innan úr stjórnkerfinu. Það kom mér á óvart þegar ég var kominn í þetta ráðuneyti og komst að því, og það var svo sannarlega ekki á fyrstu dögunum, að þetta var mismunandi á milli stofnana. Það eru því í rauninni ekki sömu, getum við sagt, prinsipp eða reglur í gildi milli Umhverfisstofnunar, Skipulagsstofnunar og Orkustofnunar, svo að dæmi sé tekið. Það er ekki bara misræmi, það gerir það líka að verkum að það er erfitt að sinna verkefnum þegar tekjurnar koma ekki á móti.

Ég treysti því, vegna þess að það er komin umtalsverð reynsla á þetta í nokkuð langan tíma, að hér séu menn að fara leið sem er allt það sem við viljum sjá, bæði skilvirk, réttlát og gagnsæ. Ég hef svo sem ekki miklar áhyggjur af því að þeir sem greiða þessi gjöld muni ekki gæta sinna hagsmuna. Við munum örugglega fá í gestakomum og umsögnum um frumvarpið gagnrýni ef menn telja að hér sé ekki gengið fram með skynsamlegum og réttlátum hætti.