154. löggjafarþing — 96. fundur,  16. apr. 2024.

breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.

898. mál
[21:53]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Ég ætla að byrja á því að þakka hæstv. ráðherra svörin. Svo langar mig að spyrja að tvennu. Hvað eigum við að segja, annars lags umsóknarvinna, tökum umsókn um vinnslu jarðefnis. Við erum með regluverk sem er kannski opnara en það ætti að vera ef við horfum á ásókn fyrirtækja í jarðefni á Íslandi en það er svona opið vegna þess að það er búið til til að bóndinn eigi auðvelt með að sækja möl í hlaðið eða hvað það er. Það er því ákveðinn sjálfsþurftarbúskapur byggður inn í hluta af regluverkinu þegar kemur að auðlindanýtingu. Það er alveg ástæða til að skilja þarna eitthvað á milli og herða reglurnar þannig að við getum ekki lent í því að einhverjir auðhringir hópist hingað og fari að flytja heilu fjöllin úr landi til að mylja ofan í steypu erlendis. Ég velti fyrir mér hvort það hafi verið skoðað í ráðuneytinu með gjaldtökuna, að hún geti tekið mið ekki bara af umfangi umsóknarinnar sem slíkrar heldur miðist eitthvað aðeins við eðli umsækjandans. Það er annað ef bóndi er að sækja um lítið námaleyfi eða eitthvert fyrirtæki er að gera það á fjárhagslegum forsendum.

Oft eru stofnanir með lögbundið hlutverk í alls konar umsagnarferlum gagnvart hver annarri, umhverfismatsferlið er gott dæmi um það þar sem margar stofnanir eiga að skila inn umsögnum. Þá bregður, ef ég man rétt, svo við (Forseti hringir.) að Skipulagsstofnun hefur heimild til gjaldtöku fyrir umhverfismat en það gjald lekur ekki út til þeirra stofnana sem hafa (Forseti hringir.) hlutverki að gegna í þessu ferli. Mig langar að spyrja hvort mætti fara að skoða þá þætti líka.