breytingar á ýmsum lögum vegna eftirlits og leyfisveitinga Orkustofnunar.
Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Þegar menn eru að setja á þjónustugjöld þá er almenna reglan sú að það verður að vera fyrir veitta þjónustu. Þjónustugjöld og skattar eru ekki það sama og við erum með mörg dæmi um að þeir aðilar sem hafa verið að greiða þjónustugjöld hafi sótt rétt sinn þegar hið opinbera hefur gengið of langt í því að taka tekjur sem eru ekki í samræmi við þá þjónustu sem veitt er.
Ég hef ekki heyrt af þessu vandamáli sem hv. þingmaður er að vísa hér til og það er ekki minn vilji að setja reglur, ég tala nú ekki um strangar reglur, nema þörf sé á því. Það hins vegar liggur líka fyrir þegar menn eru að setja á þjónustugjöld eða setja almennt reglur í stjórnsýslunni að menn verða að gæta jafnræðis. Hins vegar er hv. þingmaður að fara í mál sem ég hef svo sem ekki heyrt að væri sérstakt vandamál og það hefur ekki ratað inn á mitt borð sem slíkt.
En svona almennt þá erum við auðvitað að sameina stofnanir til að koma í veg fyrir tvíverknað, auðvelda samvinnu og síðan er okkar markmið þegar kemur að leyfisveitingum að við séum með það sem er ekki komin nein góð íslenska á en er kallað á erlendri tungu „one stop shop“ þar sem þeir sem þurfa að fá leyfi fyrir ýmiss konar starfsemi geti leitað á einn stað til einföldunar, þó svo að það séu margir aðilar sem koma að því með einhverjum hætti. Síðan erum við með sameiningarfrumvap til þess að einfalda þetta ferli og m.a. auka skilvirkni þegar kemur að þjónustu og gjaldtöku.