Orkusjóður.
Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 76/2020, um Orkusjóð. Í frumvarpi þessu er lögð til sameining á Orkusjóði og loftslagssjóði. Meginhlutverk nýs Loftslags- og orkusjóðs verður að styðja við nýsköpun og innviðaverkefni á sviði loftslagsmála, orkunýtingar og hringrásarhagkerfis. Frumvarpið hefur verið kynnt í samráðsgátt Stjórnarráðsins og unnið úr athugasemdum.
Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar er kveðið á um að Ísland verði vagga nýrra lausna á grunni auðlinda, þekkingar og staðsetningar. Styðja á við græna atvinnuuppbyggingu og fjárfestingar, ásamt því að greiða götu verkefna, m.a. á sviði föngunar, geymslu og förgunar kolefnis og uppbyggingu hringrásarhagkerfis með fjölnýtingu orkustrauma og orkuskipta.
Markmiðið með frumvarpinu er að einfalda og auka við styrkveitingar á sviði umhverfis-, orku- og loftslagsmála með það að markmiði að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Núverandi skipulag við styrkveitingar ráðuneytisins hefur reynst nokkuð flókið og hefur því leitt til nokkurs kostnaðar við umsýslu sjóða og fjármagns. Verði frumvarpið að lögum verður hægt að setja enn skýrari áherslu á að verkefni sem styrkt eru stuðli að samdrætti í losun gróðurhúsalofttegunda.
Með frumvarpinu er ætlunin að sameina tvo sjóði sem heyra undir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, Orkusjóð og loftslagssjóð, sem styrkja annars vegar verkefni sem tengjast orkuskiptum og hins vegar nýsköpun á sviði loftslagsmála. Einnig munu styrkir til innleiðingar á hringrásarhagkerfinu falla undir nýjan sameinaðan sjóð.
Auk þessa meginhlutverks Loftslags- og orkusjóðs, að styðja við nýsköpunar- og innviðaverkefni á sviði loftslagsmála, orkunýtingar og hringrásarhagkerfis, er gert ráð fyrir að sjóðurinn sjái um beinar stuðningsaðgerðir, svo sem styrki til kaupa á rafbílum og styrki til jarðhitaleitar, eftir atvikum hverju sinni.
Að lokum er lagt til að kveðið verði skýrar á um að ákvarðanir stjórnar Loftslags- og orkusjóðs um styrkveitingar séu endanlegar á stjórnsýslustigi.
Að auki vil ég taka fram að til þess að við náum þeim markmiðum sem sett hafa verið fram í loftslagsmálum og um kolefnishlutleysi er grundvallaratriði að allir ferlar séu skilvirkir, einfaldir og árangursríkir. Allar þær breytingar sem ráðuneytið vinnur nú að, svo sem varðandi stofnanaskipulag, vindorku og þetta einföldunarmál sem hér um ræðir, eru liðir í því stóra verkefni.
Virðulegi forseti. Ég hef rakið meginefni þessa frumvarps og ég legg til að frumvarpinu verði að lokinni 1. umræðu vísað til hv. umhverfis- og samgöngunefndar.