Orkusjóður.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Stóra málið er þetta: Það verða náttúrlega ekki til fleiri peningar við það að sameina sjóði en það sparast peningar við umsýslu og styrkveitingarnar verða skilvirkari. Það er auðvitað sérstakt að vera með í sama ráðuneytinu tvo sjóði með sitthvoru nafninu sem hafa í rauninni sama markmiðið. Hugsunin á bak við þetta er að Loftslags- og orkusjóðurinn verði deildaskiptur og að fjármagni verði ráðstafað í mismunandi verkefni eftir áherslum hverju sinni en síðan muni áherslurnar auðvitað breytast. Það segir sig sjálft að t.d. þær áherslur sem eru á orkuskipti varðandi rafbíla munu vonandi einhvern tímann og sem fyrst heyra sögunni til vegna þess að við verðum búin að ná þeim markmiðum sem við þurfum.
Alltaf í öllu sem við gerum í ráðuneytinu er útgangspunkturinn nýsköpun. Þau verkefni sem við höfum tekið þátt í, t.d. með landshlutasamtökunum og Landsvirkjun og fleiri aðilum, miða m.a. að því að þetta sé rauði þráðurinn í því sem við erum að gera. Við munum ekki ná árangri í loftslagsmálum nema með nýsköpun. Við munum ekki ná árangri í grænni orku, orkusparnaði nema með nýsköpun. En síðan erum við auðvitað líka með sjóðaumhverfi sem er miklu stærra og öflugra þegar kemur að nýsköpun og ég treysti því að það sé sömuleiðis alltaf línan og stefnan hjá þessum stóru sjóðum að styðja við græna nýsköpun því að hún er algjörlega nauðsynleg.
Þessi breyting mun náttúrulega auka sveigjanleikann, gera styrkveitingar ráðuneytisins skilvirkari og síðan verður þetta deildaskipt sem mun síðan breytast eftir áherslum á hverjum tíma.