Orkusjóður.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Það er því miður þannig að það er ekki nógu mikil áhersla á grænar lausnir þegar kemur að hinu stærra styrkveitingakerfi og það er nokkuð sem ég held að hæstv. ráðherra ætti að ræða við kollega sinn úr háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytinu, hvort ekki sé hægt að setja frekari eyrnamerkingar á græna nýsköpun í þeim sjóðum líka, vegna þess að þær upphæðir sem eru í þeim sjóðum sem eru hér í dag eru allt of lágar. Við ættum að vera að tvöfalda, þrefalda ef ekki tífalda þessa upphæð.
Mig langaði hins vegar að spyrja ráðherra: Nú hefur það verið harðlega gagnrýnt varðandi Orkusjóð að sjóðurinn hefur verið að veita styrki til stórfyrirtækja sem skila tugmilljóna arði til sinna hluthafa. Þurfum við að vera að setja fjármagn í þessa aðila? Er ekki miklu betra að setja það í aðila sem hafa ekki efni á því að gera þessa hluti frekar en þá sem geta alveg fjárfest og tekið svona fjárfestingu af arðinum sínum?