Orkusjóður.
Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hæstv. ráðherra framsöguna og mig langar að spyrja í mínu fyrra andsvari út í hversu vel þessir tveir sjóðir eiga saman. Við erum annars vegar að ræða um Orkusjóð, sem til þessa hefur veitt styrki eða niðurgreiðslur að ákveðnum skilyrðum uppfylltum og það hlutverk er í rauninni að blása út margfalt með því að niðurgreiðslur á rafbílum færist þangað inn, og hins vegar erum við með samkeppnissjóð sem byggir á faglegu mati á umsóknum. Þetta virkar eins og verklag sem er svo ólíkt að maður spyr sig: Hver eru hin eiginlegu samlegðaráhrif þegar upp er staðið? Í greinargerð er talað um að þetta skipulag sé óþarflega flókið og valdi aukakostnaði við umsýslu sjóðanna og fjármagns. Þá langar mig að spyrja ráðherrann: Hversu mikill er sá aukakostnaður? Það kemur hvergi fram í frumvarpinu. Ég set nefnilega ákveðið spurningarmerki við að það myndi nást mikill sparnaður í umsýslu við sameiningu þessara sjóða vegna þess einfaldlega hversu ólík verkefnin eru.