154. löggjafarþing — 96. fundur,  16. apr. 2024.

Orkusjóður.

942. mál
[22:10]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er enginn vafi að sjóðaumhverfið á Íslandi, og á það hefur margoft verið bent, er allt of fjölmennt ef við tölum um fjölda sjóða. Í þessu tilfelli er þetta mjög einfalt. Þú ert með tvo sjóði sem eru með sömu markmið og það er miklu einfaldara að deildaskipta sjóðunum í staðinn fyrir að vera með marga sjóði. Ef við trúum því að það sé gott að hafa sjóð um hvert verkefni þá skulum við líka fara að fjölga þeim hressilega. Þessir tveir sjóðir eru samkeppnissjóðir og það þarf umsýslu í kringum hvern sjóð fyrir sig og það er mun einfaldara að fjölga deildum, eða fækka þeim, heldur en að fjölga sjóðum. Ef við trúum því að það sé ekki samlegð milli þessara sjóða vegna þess að hér séu mismunandi deildir — eins og hv. þingmaður vísaði réttilega til var farið úr ívilnunum, sem mér fannst ekki gott, og sett inn að bílarnir yrðu bara ein deild í viðbót. En markmið beggja sjóða er að draga úr losun, það er útgangspunkturinn. Ef við trúum því að það sé gott að hver sjóður sé bara með eitt verkefni þá skulum við bara snúa þessu við og gera svona 10–20 sjóði, bara til öryggis; byrja kannski í tíu og svo getum við fjölgað eitthvað aðeins.