154. löggjafarþing — 96. fundur,  16. apr. 2024.

Orkusjóður.

942. mál
[22:12]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Ég fæ kannski að hnýta aftan við það sem hæstv. ráðherra segir. Jú, markmið beggja þessara sjóða er að draga úr losun en markmið allra verkefna ríkisstjórnar Íslands árið 2024 ætti að vera að draga úr losun. Það þýðir ekki endilega að við ætlum að sameina öll þessi verkefni undir einu þaki þó að þau séu með þetta sameiginlega markmið.

Ráðherra svaraði því til að þetta væri mjög einfalt. Það væri mun einfaldara að vera með einn sjóð deildaskiptan en fleiri sjóði ekki deildaskipta. En hann svaraði ekki spurningunni. Spurningin var: Hver er aukakostnaðurinn sem ráðuneytið metur að falli niður? Það hlýtur að liggja einhver krónutala einhvers staðar fyrir. Það hlýtur að vera búið að meta þessi áhrif. Ég bið um skýrt svar við þessu.

Hæstv. ráðherra nefndi tekjurnar sem íslenska ríkið er farið að hafa af ETS-kerfinu, sem við þingmenn Pírata höfum reyndar lagt til hér ítrekað að verði notaðar inn í loftslagssjóð. Fjárveitingar til hans eru í engu samræmi við þær tekjur sem ríkið er farið að hafa af ETS-kerfinu. Í prinsippinu ætti þetta hins vegar að vera sama talan. En það sem er að gerast núna síðustu misserin er að frekar en að nota ETS-tekjurnar til að styrkja aðra til að draga úr losun þá er verið að nota þær til að niðurgreiða kostnað hjá flugfélögum. Það er 3,1 milljarður á næstu tveimur árum sem er verið að gefa frá ríkinu í mögulegum uppboðstekjum samkvæmt fjármálaáætlun eins og hún var lögð fram í morgun. (Forseti hringir.)

Mig langar að spyrja ráðherrann í fyrsta lagi: Hver er kostnaðurinn sem hann reiknar með að sparist? (Forseti hringir.) Og í öðru lagi: Hefur hann ekki áhyggjur af því hvað er verið að nýta ETS-tekjurnar illa fyrst þær eru ekki að renna til loftslagsvænna verkefna.