Orkusjóður.
Virðulegi forseti. Ég er að tala eftir minni en umsýslukostnaður hjá loftslagssjóði er mjög mikill. Ég held að hv. þm. Hildur Sverrisdóttir hafi kallað eftir upplýsingum um hann og hlutfallið var mjög hátt — eða best að fara ekki með það, ég hvet hv. þingmann til að kanna það. Það var mjög há fjárhæð, bæði hlutfallslega og líka í tölum. Ég held að það sé öruggara að kallað sé eftir því frekar en að ég fari með það hér eftir minni en það er alveg augljóst að kostnaðurinn, miðað við þennan litla sjóð, er mjög mikill og hefur verið. Það er auðvitað ekki skynsamlegt. Ég veit ekki alveg hvort allt hjá ríkinu hafi það markmið að draga úr losun. Ég held að hjá lögreglunni og heilbrigðiskerfinu sé það kannski ekki alveg númer eitt, markmiðið um að draga úr losun, svo dæmi sé tekið, þó að það sé mjög mikilvægt að allir rói í sömu áttina. En það er kannski aukaatriði í þessu.
Ég skal bara vera alveg hreinskilinn með það, ef það hefur farið fram hjá einhverjum, að ég er mjög einbeittur í því og allt það sem ég hef verið að tala um, held ég nokkurn veginn, hér í dag miðar að því að einfalda það og gera það skilvirkara að fara betur með skattfé. Ég er bara mjög upptekinn af því, hef alltaf verið og ætla að halda því áfram. Ég verð að viðurkenna að mér finnst ég ekki þurfa að færa rök fyrir því þegar þú ert með tvo sjóði sem hafa sama markmið, og ég tala nú ekki um þegar umsýslukostnaður er jafn mikill og raun ber vitni, af hverju það væri skynsamlegt að sameina þá. En það er svona.