Orkusjóður.
Virðulegi forseti. Hér ræðum við tiltölulega einfalt frumvarp sem lætur kannski lítið yfir sér, er ekkert sérstaklega bosmamikið en varðar hins vegar stór mál. Ég held að ég skilji fyllilega markmiðið og uppleggið og hugmyndina með þessu frumvarpi, þ.e. það sem á að ná fram með því. Mig langar þó að koma aðeins inn á nokkur atriði sem ég, eins og hv. þm. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, vil halda til haga í þessari umræðu.
Frumvarpið varðar sannarlega breytingu á lögum um Orkusjóð en liður í frumvarpinu varðar jú líka breytingar á lögum um loftslagsmál, lögum sem voru sett árið 2012 og breytt töluvert árið 2019, m.a. hvað varðar atriði sem lýtur að því sem við fjöllum um í þessu frumvarpi til laga. Breytingar á lögum um loftslagsmál frá 2019 voru ákveðinn fyrirrennari að því sem hér er svo verið að mæla fyrir í frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Orkusjóð, þ.e. að hér verði til stöndugur Loftslags- og orkusjóður.
Í þessu samhengi vil ég halda tvennu sérstaklega til haga. Ég sakna þess, og veit að félagar mínir í þingflokki Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs sem hafa látið loftslagsmálin sig heldur betur varða — það var nú ráðherra á sínum tíma úr okkar röðum sem mælti fyrir þessum fyrstu loftslagslögum frá árinu 2012 og margar af þeim hugmyndum sem hafa ratað inn í þá löggjöf eru vissulega ættaðar úr okkar ranni. Eitt af því sem var lagt upp með og er skilgreint í loftslagslögum um hlutverk loftslagssjóðs, í 29. gr. laganna, er, með leyfi forseta, eins og þar segir:
„Hlutverk sjóðsins er að styðja við nýsköpunarverkefni á sviði loftslagsmála og verkefni sem lúta að kynningu og fræðslu um áhrif loftslagsbreytinga.“
Virðulegi forseti. Ég, rétt eins og félagar mínir í þingflokki Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, sakna þessarar áherslu sérstaklega, þ.e. þess sem lýtur að kynningu og fræðslu um áhrif loftslagsbreytinga. Áður voru atriði í upphaflegu löggjöfinni sem vörðuðu styrki úr loftslagssjóði til endurheimtar landgæða, sér í lagi landgræðslu og skógrækt og endurheimt votlendis, en réttilega er kannski ástæðulaust að þessi sjóður sé að taka á þeim verkefnum í dag þegar þau eru sannarlega komin á ákveðna sporbraut í stofnun sem heitir í dag Land og skógur og hafa fengið, sér í lagi á síðasta kjörtímabili, töluverða aukningu í fjárframlögum til að sinna því mikilvæga verkefni — sem er mjög mikilvægt. Hins vegar er ég alveg sammála því að áherslan í þessum ákveðna sjóði sé ekki endilega hvað það varðar en vil halda til haga að það skiptir máli að þessi sjóður geti líka horft til úthlutunar í þágu verkefna sem lúta að kynningu og fræðslu um áhrif loftslagsbreytinga. Þetta er nú eitt atriði.
Annað atriði, sem snertir kannski að einhverju leyti á því sem hv. þm. Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir kom inn á hér áðan og fór hér ágætlega yfir umsagnir sem komu við frumvarpið í samráðsgátt, lýtur að því hvernig er svo staðið að þessari úthlutun. Og það er rétt sem komið hefur fram að hvað varðar loftslagssjóðinn sérstaklega þá hefur það verkefni verið á höndum Rannís, að úthluta úr honum, á meðan málum er aðeins öðruvísi farið þegar kemur að stjórn Orkusjóðs. En með þessu frumvarpi er ekki verið að gera neinar tillögur um breytingar á stjórn Orkusjóðs og í lögunum segir, virðulegi forseti:
„Ráðherra skipar þrjá einstaklinga í stjórn Orkusjóðs til fjögurra ára, þar af skal einn skipaður formaður.“ — Punktur. Þetta er nú um skipan stjórnarinnar í Orkusjóði.
Á móti kemur að í núgildandi loftslagslögum, kaflanum sem lagt er til með þessu frumvarpi að falli út, segir í 31. gr. um stjórn, með leyfi forseta:
„Ráðherra skipar fimm fulltrúa í stjórn loftslagssjóðs til tveggja ára í senn. Formaður skal skipaður án tilnefningar og honum til viðbótar skipar ráðherra einn fulltrúa án tilnefningar, einn fulltrúa, sem hefur þekkingu á loftslagsmálum, samkvæmt tilnefningu háskólasamfélagsins, einn fulltrúa samkvæmt tilnefningu Samtaka atvinnulífsins og einn fulltrúa samkvæmt tilnefningu umhverfisverndarsamtaka.“ — Svo tekur stjórnin ákvarðanir um úthlutanir úr sjóðnum í samræmi við reglur hans sem ráðherra setur.
Það sem ég vil halda til haga í þessu samhengi og tel að þurfi að skoða mjög vel í hv. umhverfis- og samgöngunefnd, sem ég treysti að fái þetta verkefni til sín, er hvort ekki þurfi að huga sérstaklega að samsetningu sjóðsstjórnarinnar í samhengi þessara umfangsmiklu og að ég held mikilvægu breytinga ásamt þeim öðrum atriðum sem komið hafa hér fram. Ég sé engin rök fyrir því, virðulegi forseti, að ekki verði lögð áhersla á verkefni sem lúta að kynningu og fræðslu um áhrif loftslagsbreytinga, jafnframt hringrásarhagkerfið ef því er að skipta því að það er sannarlega komið inn í þessa tillögu og ég fagna því. Ég sé engin rök með því að við úthlutun sé ekki horft til mikilvægis þessara verkefna sem í einhverjum tilfellum eru landlaus án þess að hafa aðgang að einhvers konar fjármagni í gegnum faglega sjóðsúthlutun eins og ég legg upp með að þurfi að vera í samhengi löggjafar sem þessarar.