154. löggjafarþing — 96. fundur,  16. apr. 2024.

Orkusjóður.

942. mál
[22:35]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Forseti. Já, hvar skal byrja? Ég ætla að þakka hv. þingmanni yfirferðina og fyrir að hafa dregið fram atriði sem þingflokkur Vinstri grænna, ef ég skil rétt, gerir ákveðinn fyrirvara við í þessu máli, sem birtast líka í sumum þeirra umsagna sem bárust við það á fyrri stigum. Ein mjög jákvæð breyting hefur þó átt sér stað á þessu máli frá því að það fór fyrst að líta dagsins ljós í fyrstu hríðunum. Í þingmálaskrá sem birtist í haust var niðurlagning loftslagssjóðs t.d. innan sviga í heiti málsins, hluti af nafni málsins — ágætt að það sé horfið frá því vegna þess að það boðaði ekki gott fyrir samtalið sem ætti að eiga sér stað varðandi einhverja heildarendurskoðun á þessu regluverki. Það að leggja niður annan sjóðinn frekar en að skoða möguleikann á að sameina þá tvo er tvennt mjög ólíkt.

Hv. þingmaður fór yfir forsöguna og nefndi að loftslagssjóður ætti rætur að rekja til þess þegar lög um loftslagsmál voru sett á sínum tíma, 2012. Þá langar mig að rifja upp hvernig fjármögnun sjóðsins var útfærð í árdaga. Þá var nefnilega ákveðið að taka upp að fullu andann í Evrópuregluverkinu sem þetta sprettur úr varðandi það að tekjur loftslagssjóðs væru í samræmi við tekjur ríkisins af ETS-kerfinu. Fyrstu árin skipti þetta giska litlu, þar sem tekjurnar af ETS-kerfinu voru engar, en nú er svo komið að þær eru farnar að hlaupa á hundruðum milljóna á ári og enn standa framlög til loftslagssjóðs (Forseti hringir.) víðs fjarri þeim upphæðum. Mig langar að heyra aðeins í þingmanninum, hvort þurfi ekki aðeins að skoða þessa fjármögnun og festa í sessi aftur.