Orkusjóður.
Virðulegi forseti. Það er gott að það voru ekki fleiri andsvör sem biðu einhvers staðar í hliðarherbergjum. Mig langar að byrja á því að taka undir það sem hv. þingmaður sagði hér áðan, að hér væri um lítið og nett frumvarp að ræða sem kannski lægi margt á bak við. Eins og kom fram í andsvörum mínum við hæstv. ráðherra þá tel ég að allt of lítið hafi verið gert af því að styðja við loftslagstengda nýsköpun hér á landi. Sá loftslagssjóður sem hér um ræðir er hreinlega allt of lítill, 173 milljónum úthlutað í fyrra. Það er hreinlega allt of lítið enda má geta þess að þetta fór ef ég man rétt til um 16 verkefna. Við erum því rétt að telja örfáar milljónir í hvert verkefni. Það er einmitt nýsköpunin á sviði loftslagsmála sem getur gert stóru breytingarnar fyrir okkur þegar kemur að loftslagsmálunum.
Við eigum gott dæmi hér á landi um tækni tengda loftslagsmálunum sem hefur verið þróuð hér á landi, Carbfix-tæknin. Því miður er ekki nægilega mikið af íslensku fjármagni sem þeir hafa fengið heldur hafa þeir blessunarlega fengið mikið fjármagn frá Evrópusambandinu í gegnum verkefni þar. Það er alltaf hægt að ræða um það hvernig eigi að framkvæma svona styrkveitingar, hvort þetta eigi að vera í einum sjóði, tveimur sjóðum eða hundrað sjóðum. Ég verð að vera sammála hæstv. ráðherra um að það er kannski óþarfi að vera með of litla sjóði en ég tel að loftslagsmálin séu dálítið stór biti og það að við viljum endilega stækka þá köku er mikilvægt.
Samkvæmt þessu frumvarpi er lagt til að þarna verði loftslagssjóður og Orkusjóður sameinaðir og verði hreinlega deildir í sama sjóðnum, Loftslags- og orkusjóði. Eins og bent var á hér á undan kemur ekki alveg nægilega ljóst fram í þessum breytingum hvaða áhrif þetta mun hafa á það form sem verður á styrkveitingum og hvernig því verður stýrt. Mig langar þó að hvetja hæstv. ráðherra, rétt eins og ég hvatti hæstv. kollega ráðherra í gær, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, þar sem var verið að ræða um nýjan sjóð. Þar var líka verið að sameina sjóði og eitt af því sem var lögð mikil áhersla á í því sambandi var að skipa yfir þann nýja sjóð stjórn með mikla þekkingu á þeim málum. Mig langar að hvetja hæstv. ráðherra til að fylgja ekki því sem saga flokks hans í gegnum tíðina hefur verið, að skipa bara vini og vandamenn eða þá sem kjósa rétt, heldur virkilega skipa í stjórn þessa nýja sjóðs fólk með þekkingu á þessu sviði. Það skiptir máli að úthlutanir og annað sem kemur í gegnum þessa sjóði sé gert á faglegum forsendum en ekki pólitískum.
Loftslagssjóðurinn gamli er litli bróðirinn í þessu sambandi tveggja sjóða sem á að sameina þar sem hinn sjóðurinn, Orkusjóður, er rétt tæpur milljarður, eða 900 milljónir ef ég las rétt hverjar úthlutanirnar eru á þessu ári. Hins vegar falla undir þann sjóð ýmis verkefni. Þar geta fallið verkefni eins og t.d. það að leita að jarðhita. Orkusjóður hefur einmitt, eins og okkur í atvinnuveganefnd hefur verið sagt frá, verið að styrkja t.d. leit að lághitasvæðum á Reykjanesi til þess að hafa mögulega áætlun b ef heita vatnið fer algerlega frá Svartsengi. Það er því verið að setja pening úr Orkusjóði í það að finna heitt vatn.
Undir Orkusjóðinn fellur líka sá stuðningur sem fólk fær við bílakaup. Það voru samþykktar hér á þinginu í fyrra breytingar sem gerðu það að verkum að frá og með áramótum er hægt að sækja um styrki í Orkusjóð fyrir kaup á rafbílum. Það fer því fjármagn úr þessum sjóði í slíkt. Hæstv. ráðherra er kannski mjög ánægður með að sala á slíkum bílum hefur næstum algerlega stöðvast og þar af leiðandi þarf hann ekki að hafa áhyggjur af því að þurfa að borga of mikið úr Orkusjóði. En það er ekki gott ef það heldur áfram vegna þess að það að fara í orkuskipti í bílaflotanum er eitt af lykilatriðunum til að draga úr útblæstri. Því miður mun það kosta okkur enn hærri upphæðir heldur en við erum að tala um í Orkusjóð til lengri tíma. Það er því, eins og bent var á, fullt af verkefnum þarna inni og því þarf eflaust að forgangsraða þeim verkefnum eitthvað.
Ég spurði hæstv. ráðherra áðan um styrki til fyrirtækja sem væru með mikinn arð og hæstv. ráðherra sagði að það yrði að vera jafnræði í þessu. Það er nú einfaldlega þannig að í fullt af því sem við gerum, t.d. í öllum þeim verkefnum sem styðja við grindvísk fyrirtæki, höfum við t.d. verið með takmörkun á því að fólk geti verið að borga sér út arð. Það eru því alveg til dæmi um að það séu settar reglur. Það er líka þannig í mörgum af nýsköpunarstyrkjunum sem veittir eru. Þar máttu t.d. ekki hafa haft veltu í ákveðið langan tíma yfir ákveðinni upphæð, þú mátt ekki hafa haft starfsemi í ákveðið langan tíma, þá bara hreinlega getur þú ekki sótt um nýsköpunarstyrk. Það eru því alveg til dæmi um að það sé verið að setja einhver skilyrði fyrir því hverjir fá greiðslur úr þessu. Það verður bara að segjast hreint út að þegar um er að ræða risastór fyrirtæki, sem eru að nýta auðlindir þjóðarinnar og fá að gera það á kostnað ríkisins vegna þess að kostnaðurinn við það að fylgjast með notkun þeirra á auðlindunum er orðinn það hár og gjöldin sem þau borga eru ekki nægileg til að þau fari til þess að borga upp eftirlitskostnaðinn, þá er ansi skrýtið að þeir aðilar skuli síðan geta fengið niðurgreitt úr þessum sjóði hægri og vinstri af því að þeir eru góðir aðilar að mati þeirra sem fara með völdin.
Ég nefndi að það fjármagn sem kemur í þennan sameinaða sjóð væri allt of lítið. Það er til mjög einföld leið til þess að auka það fjármagn og það er t.d. að eyrnamerkja það sem við fáum úr ETS-kerfinu og nota það til að setja inn í Loftslags- og orkusjóð. Það er nú ekki meira framandi hugmynd en svo að það er nákvæmlega þannig sem farið er með þessi mál í flestum löndum í Norður-Evrópu. Eitt sem gert er til að tryggja jafnrétti og jafnræði í loftslagsaðgerðum er að styrkja verkefni fyrir þá sem hafa t.d. minna milli handanna, t.d. fólk sem vill kaupa sér rafmagnsbíl en hefur ekki efni á því. Þá er það gert þannig í flestum öðrum löndum (Gripið fram í.) — jú, að kolefnisgjald og önnur gjöld sem eru borguð eru nýtt til að fjármagna það. Mig langar þá að bjóða bara hæstv. ráðherra að mæta á ráðstefnu þar sem ég er að tala í næstu viku í Lúxemborg sem fjallar nákvæmlega um það hvernig eigi að ná jafnræði þegar kemur að aðlögun í þessu. Þannig að það er nú verið að gera þetta á fleiri stöðum.
Að lokum þá langar mig bara að koma með smá bros á menn hérna inni. Í gær fjölluðum við um frumvarp um Nýsköpunarsjóð og ég hélt að það frumvarp myndi fara inn í þá nefnd sem fjallar um nýsköpun. Nei, af því að þetta var sjóður þá átti það að fara í efnahags- og viðskiptanefnd. Í dag fjöllum við um frumvarp um Orkusjóð og það fer í umhverfisnefnd en ekki efnahags- og viðskiptanefnd, jafnvel þó að það sé sjóður. Ég verð að segja að ég er hættur að skilja hvernig sum frumvörp fara einhvern veginn handahófskennt til nefnda. Ég held að við þurfum að fara að horfa á það að setja hlutina til þeirra sem eru með faglegu sjónarmiðin. Þetta fer til umhverfis- og samgöngunefndar og í gær hefði frumvarpið átti að fara til atvinnuveganefndar.