Orkusjóður.
Herra forseti. Við ræðum hér frumvarp umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um sameiningu Orkusjóðs og loftslagssjóðs.
Forseti. Er nokkuð hægt að fá strákana í salnum til að lækka aðeins í sér? (Forseti (ÁsF): Viljiði hafa hljóð. Viljiði hafa hljóð í hliðarsölum.)Er kominn einhver Kveldúlfur í ráðherrann? (Forseti (ÁsF): Gjörðu svo vel.)Takk.
Eins og ég sagði í andsvörum við hv. þm. Orra Pál Jóhannsson er ég töluvert ánægðari með uppleggið í þessu frumvarpi en það var upphaflega í samráðsferli. Í fyrstu skrefum var alltaf talað um niðurlagningu loftslagssjóðs. Ég held að það hefði örugglega orðið töluvert mildari umræða um þessar hugmyndir um sameiningu tveggja sjóða, sem að mati ráðherra þjóna sama markmiði, ef ekki hefði verið lagt af stað í þessa vegferð eins og það ætti að leggja annan sjóðinn niður. En nú er það komið að frumvarpið snýst um að búa til nýjan sjóð á grunni þeirra tveggja sem fyrir eru.
Það var dálítið áhugavert að heyra hæstv. ráðherra furða sig á því að sá sem hér stendur væri að spyrja hann í andsvörum að því hver hann teldi að væri fjárhagslegur ávinningur af því að sameina þessa sjóði. Það var nú einfaldlega vegna þess að í frumvarpinu er talað um að kostnaðurinn sé of mikill við að vera með þá tvo. Ég reiknaði því með að hæstv. ráðherra hefði þessar tölur á reiðum höndum. Hann brást við með því að segja að það hefði komið honum á óvart vegna þess að honum fyndist hann ekkert endilega þurfa að rökstyðja að fjárhagslegur ávinningur væri til staðar þó að það sé náttúrlega bara það sem lög um opinber fjármál kalla á að ráðherrar geri í hvert einasta sinn sem þeir leggja fram stjórnarfrumvarp. Það á að leggja mat á áhrif stjórnarfrumvarpa, þar á meðal fjárhagsleg áhrif. Ég játa það á mig að hafa reiknað með að ráðherrann hefði þessar tölur á lager. Þetta er eitthvað sem við erum að skoða nánar í umfjöllun umhverfis- og samgöngunefndar en við það að kíkja á svör við fyrirspurn hv. þm. Hildar Sverrisdóttur þá kom í ljós að umsýslukostnaður þessara tveggja sjóða er sambærilegur. Hann er 7,5% í loftslagssjóði og 7% í Orkusjóði. Nú er ég ekki með tilfinningu fyrir því hvort þetta telst hátt eða lágt en það er eitthvað sem nefndin mun leggjast yfir.
Það sem mig langar að ræða hér er kannski aðallega grundvöllur loftslagssjóðs. Eins og fram hefur komið í umræðunni eru þetta mjög misstórir sjóðir sem er rætt um að sameina hér. Annars vegar er loftslagssjóður sem nær ekki 200 milljóna markinu og hins vegar Orkusjóður sem er margfalt stærri. Hvað var það í ræðu hv. þm. Gísla Rafns Ólafssonar? Var hann að tala um tæpan milljarð? Það er þá væntanlega fyrir utan millifærslurnar til rafbílanna sem hlaupa á hærri upphæðum. Svona þyrfti þetta náttúrlega ekki að vera ef það hefði verið forgangsraðað í þágu loftslagssjóðs í samræmi við umfang málaflokksins. Einhver kann að spyrja: Hvað meinarðu með umfangi málaflokksins? Jú, það er nefnilega þannig að það er óvenjuauðvelt að mæla það í þessu tilviki. Loftslagssjóður sprettur upp úr evrópsku samstarfi sem Ísland tekur þátt í, í samfloti Íslands með Evrópusambandinu í loftslagsmálum, og honum er komið á með lögum um loftslagsmál árið 2012 og þá er fléttað inn í frumvarpið, sem síðan verður að lögum, ákvæði um það að tekjur sjóðsins skuli nema hlutfalli af tekjum íslenska ríkisins af uppboði losunarheimilda í ETS-kerfinu. Dálítið einföld en elegant leið til að fá fyrirtæki sem menga til að borga fyrir aðgerðir sem draga úr losun gróðurhúsalofttegunda.
Reyndar hefði þetta nú litlu skilað fyrstu árin enda blómstraði ETS-kerfið seint. Það var þegar á reyndi búið að ofreikna heimildir inn í kerfið þannig að efnahagslegi hvatinn til að smyrja þessi hjól hagfræðinnar sem voru sett þarna undir mengandi iðnað bara fór ekki að bíta fyrr en það var hreinsað aðeins út úr kerfinu. Heimildunum fór að fækka og þá fór að myndast verð á markaði. Svo gerðist það fyrir nokkrum árum að Ísland fór allt í einu að hafa tekjur af þessu kerfi og það eru bara ágætistekjur sem hljótast af þessu. Við erum hins vegar því miður að horfa upp á það — hér er ég með tekjuspá sem fjármálaráðuneytið vann vegna uppboðs á losunarheimildum fyrir árin 2024–2028 og í þessari spá, sem við fengum í umhverfis- og samgöngunefnd fyrr í vetur, er gert ráð fyrir því að tekjur ríkisins vaxi úr rúmum 3 milljörðum á ári í yfir 5 milljarða á ári. Ímyndum okkur bara hve mikið gæti sprottið upp úr þeim jarðvegi ef loftslagssjóður hefði eitthvað í líkingu við þetta til umráða.
Það sem hefur hins vegar gerst samhliða þessum vexti á tekjum íslenska ríkisins af uppboði losunarheimilda gróðurhúsalofttegunda er að freistnin hefur aukist til að nota þær tekjur, eða öllu heldur rýra þær tekjur til þess að gera eitthvað annað með þessar heimildir. Það eru ýmiss konar bókhaldsæfingar í gangi sem ég er hræddur um að fari bráðum, ef fram heldur sem horfir, að þurrka upp bara þennan tekjustofn nánast eins og hann leggur sig. Þar ber fyrst að nefna þann mikla stuðning sem ríkisstjórnin ákvað að veita íslenskum — ekki bara íslenskum heldur veita flugfélögum sem fljúga til Íslands í formi þess að ráðstafa losunarheimildum til þeirra um tveggja ára skeið, árin 2025–2026, til þess að þau geti áfram fengið endurgjaldslausar losunarheimildir. Staðan í Evrópu er nefnilega sú að það er komið að því að herða aðeins ETS-kerfið á flugi með því að minnka það magn losunarheimilda sem flugfélög geta fengið til ráðstöfunar án endurgjalds. Þar með þurfa þau að fara að greiða fyrir þær á markaði sem bæði hefur í för með sér kostnað en hefur líka þau jaðaráhrif að verð á markaði hækkar þannig að kostnaðurinn mögulega eykst enn.
Þetta var blásið upp sem gríðarlegur kostnaður þegar hagsmunaaðilar sendu íslensk stjórnvöld til að halda rúmlega 100 fundi í Brussel til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Reyndar kom í ljós að kostnaðurinn var mjög orðum aukinn. Þetta var ekki mikill kostnaður á einstaklinga, á almenning, en þetta hefði hins vegar mögulega skekkt eitthvað stöðu fyrirtækjanna. Í þágu fyrirtækjanna fengu íslensk stjórnvöld það sem var kynnt sem aðlögun. Íslensk stjórnvöld settu þetta fram í fjölmiðlum eins og framkvæmdastjórn ESB hefði komið mjög til móts við Ísland og við hefðum grætt eitthvað á þessu þegar raunin er, eins og sést svart á hvítu í fjármálaáætlun sem var dreift í morgun, að íslensk stjórnvöld eru að verða af 3,1 milljarði í uppboðstekjum á árunum 2025 og 2026. Þetta er peningur sem í prinsippinu hefði átt að rata í loftslagsvænar aðgerðir en er í staðinn að renna til flugfélaga til að þau eigi auðveldara með að græða á því að senda fólk á milli landa.
Annað sem rýrir þennan tekjustofn, sem gæti runnið beinustu leið í loftslagsvænar aðgerðir, er svokallað sveigjanleikaákvæði sem íslensk stjórnvöld sóttust eftir að nýta að fullu í mars 2020. Ég má til með að benda áhugasömum á grein um þetta, sem birtist á vefnum Himinn og haf, eftir Birnu Sigrúnu Karlsdóttur og Hrafnhildi Bragadóttur, undir yfirskriftinni: Á hvaða leið er Ísland í loftslagsmálum? Þar er farið yfir forsöguna. Þetta er dálítið sláandi. Árið 2020, á sama tíma og ríkisstjórnin var að vinna aðgerðaáætlun þar sem hún sagðist vera að auka metnað sinn í loftslagsmálum, var sama ríkisstjórn að sækjast eftir því úti í Brussel að mega millifæra losunarheimildir sem ekki nýttust innan ETS-kerfisins yfir í svokallaða samfélagslosun sem er þá samgöngur á landi, landbúnaður, úrgangsmál og ýmislegt annað. Þó að 4% hljómi ekkert svakalega stórt þýðir þetta að heimildin samsvarar næstum tvöfalt meiri losun en Evrópusambandið gerir kröfur til Íslands varðandi árlegan samdrátt í samfélagsgerðinni. Og þetta er miðað við gömlu markmiðin þar sem Ísland og ESB ætluðu sameiginlega ná 40% samdrætti. Meira að segja þó að við reiknum með einhverri hlutdeild í auknum metnaði Íslands og Evrópusambandsins upp á 55% þá myndi þessi millifærsla dekka allan þann samdrátt sem Ísland ætti að standa straum af. Þetta væri bara bókhaldstrix, þetta væri ekki raunverulegur samdráttur í losun gagnvart lofthjúpnum heldur bara gagnvart einhverju bókhaldskerfi á milli Íslands og Evrópusambandsins. Í þessari grein er vitnað í upplýsingar sem greinarhöfundar fengu frá fjármálaráðuneytinu þar sem kemur fram að þetta sveigjanleikaákvæði hafi leitt til árlegrar eftirgjafar á um 1,4 milljörðum kr. í tekjum á árunum 2021, 2022 og 2023, samtals um 7 milljarða tekjum á tímabilinu 2021–2025 vegna ákvörðunarinnar um að nýta sveigjanleikann með því móti sem stjórnvöld gerðu.
Hérna erum við með tvö dæmi um það að ríkisstjórn Íslands, eins metnaðarfull og hún segist vera í loftslagsmálum, er búin að gefa frá sér 10 milljarða í tekjum af ETS-kerfinu, 10 milljarða sem eiga að vera mengunarbætur frá t.d. álverunum á Íslandi til að standa straum af aðgerðum í þágu loftslagsmála. Þessir 10 milljarðar í gegnum loftslagssjóð hefðu nú getað lyft grettistaki, vil ég segja, og hefðu líka orðið til þess að þegar við værum að ræða mögulega sameiningu Orkusjóðs og loftslagssjóðs þá værum við að ræða jafningja að mætast og sameinast mögulega, en ekki þá yfirtöku sem ráðherrann lagði upphaflega af stað með.