Orkusjóður.
Virðulegi forseti. Ég verð að viðurkenna að það er með ólíkindum að hlusta á þennan málflutning. Ég vek athygli á því að fulltrúi Pírata, hv. þm. Andrés Ingi Jónsson, sagði hér hluti sem ég held að allir þurfi að vita, að þetta sé stefna Pírata.
Það eina sem hefur gerst, virðulegi forseti, er að þetta hefur skekkt stöðu fyrirtækjanna. Þetta eru íslensk flugfélög í alþjóðlegri samkeppni þar sem barist er um hvern einasta farþega. Að þetta hafi skekkt stöðu íslenskra fyrirtækja — hvaða máli skiptir það? Ég meina, fólk missir bara vinnuna og eitthvað svona, það fljúga bara einhverjir aðrir til Íslands. Skekkt stöðu íslenskra fyrirtækja — hvaða rugl er þetta? Þetta er stefna Pírata. Hún er: Íslensk fyrirtæki skipta engu máli, þau eru í alþjóðlegri samkeppni.
Hér eru menn að eiga við það að Ísland er með algjöra sérstöðu. Til upplýsingar fyrir hv. þingmann Pírata er Ísland í miðju Atlantshafinu, reyndar Norður-Atlantshafi, eina landið í Evrópu í þessari stöðu og það sem íslensk stjórnvöld voru að gera var að gæta hagsmuna íslenskra fyrirtækja sem Píratar segja hér í þingsal að skipti engu máli. Skekkt stöðu fyrirtækja — ég meina, er ekki nóg af flugfélögum til um allan heim? Hvaða máli skipta íslensku flugfélögin Pírata? Engu. Jú, það er eitthvert fólk sem vinnur þarna — hvaða máli skiptir það? Engu, ekki nokkru. Og íslensk stjórnvöld, þvílíkt hneyksli, voru að gæta hagsmuna íslenskra flugfélaga. Hneyksli í augum Pírata. Hneyksli.
Ég held að það sé lykilatriði að íslenskir kjósendur fái að vita fyrir hvað Píratar standa. Það er nú bara þannig að þetta fólk sem vinnur hjá flugfélögunum borgar launin ykkar með sköttunum sínum. Það er mjög mikilvægt að það og aðrir starfsmenn í íslensku atvinnulífi, sérstaklega í alþjóðlegri samkeppni, fái að vita sjónarmið Pírata.
Bara svo það sé líka sagt: Orkusjóður var stofnaður 1967 og fjármagnaði orkuskipti 2 við hitaveituvæðinguna. Af því að hér er Orkusjóður talaður niður og síðan er í öðru orðinu sagt að íslensk stjórnvöld ætli ekki að ná markmiðum varðandi sameiginlega ábyrgð Íslands, þau geri bara ekki neitt í þessu, þá hafa Orkusjóður og ívilnanirnar verið þau tæki sem hafa hjálpað okkur í gegnum orkuskiptin, sem hafa skilað mestu fyrir losun á okkar sameiginlegu ábyrgð.
Þó að Píratar reyni að blekkja fólk og segi ekki frá því, hvað er þá langstærst þegar kemur að sameiginlegri ábyrgð Íslands? Vegasamgöngur. Hvað er nr. 2? Fiskiskip. Hvað er nr. 3? Landbúnaður. Svo er örlítið með úrgangsmálin, F-gösin og annan iðnað. Vandi okkar núna er m.a. varðandi sameiginlegu ábyrgðina vegna þess að það vantar græna orku. Þá erum við í öfugum orkuskiptum, sérstaklega þar sem kemur að iðnaðinum sem er á okkar eigin ábyrgð.
Varðandi ETS þá höfum við tekjur af því kerfi. Og hvað er inni í ETS-kerfinu? Það er stóriðjan, það er millilandaflugið, það eru millilandasiglingar. Við höfum tekjur af því, þ.e. ríkissjóður. Í öðrum löndum eru þeir peningar nýttir í fyrirtæki í ETS-geiranum, stóru fyrirtækin. Bandaríkin, sem hafa stigið langstærstu skrefin undir Biden-stjórninni, undir „inflation reduction act“, eru svo sannarlega líka að styðja stóru fyrirtækin með mesta fjármagnið til að finna tæknilausnirnar, eins og hér hefur verið bent á, til að hægt sé að leysa vandann.
Menn segja: Af hverju gerum við ekki eins og aðrir? Nú, þá þurfum við að fara þessa leið sem við gerum mjög lítið af. Orkusjóður hefur hins vegar aldrei verið í því að skoða fjárhagsstöðu fyrirtækja eða einstaklinga. Þegar Orkusjóður studdi hitaveituvæðinguna þá fengu sýslumaðurinn og bæjarstjórinn og eigandi fyrirtækisins líka styrk. Alveg eins og með bílana, ívilnanirnar fara á alla, úr öllum tekjuhópum og sömuleiðis styrkirnir.
Ég held að allir séu sammála um það sem þarf að skoða. Þó svo að Rannís geri margt mjög gott er ekki ókeypis að vera þar. Og af því að menn tala um loftslagssjóð og að hlutirnir hafi verið til fyrirmyndar þar segi ég fyrir sjálfan mig: Mér finnst það ekki rétt forgangsröðun að styrkja labbitúra og ljóðagerð, mér finnst það ekki, en það er nú eitt af því sem hefur verið styrkt þar.
Ég vonast til þess, virðulegi forseti, að við fáum oftar og meiri tækifæri til að ræða þessa hluti. Af því að hér kom hv. þm. Andrés Ingi Jónsson og talaði um að menn væru ekki að gera neitt varðandi það sem er á sameiginlega ábyrgð Íslands þá skulum við ræða það hvað er á sameiginlega ábyrgð Íslands og hvernig við náum þeim markmiðum. Það er bara mikilvægt að allir viti það og að talað sé út frá staðreyndum þar. Sá árangur sem hefur náðst þar er langmest út af ívilnunum og styrkjum út af því að menn eru að fara í rafbíla úr jarðefnaeldsneyti. Það er sú einfaldasta tæknilausn sem við höfum. F-gösin, við höfum líka náð góðum árangri þar en hitt mun skila sér á lengri tíma og er flóknara.
Ég verð að viðurkenna að í þessu máli eins og öðrum þá hafa hv. þingmenn Pírata, sem er bara vel, að vísu talað ótrúlega mikið og oft farið mjög mikið út fyrir efnið og gerðu það svo sannarlega þegar kom að þessu. En úr því að menn eru að tala um þetta með þessum hætti þá er sjálfsagt að taka þá umræðu. Ég fagna því og er tilbúin í hana hvenær sem er því að það er mikilvægt að ná árangri. Ef menn ætla að ná árangri í þessum málum eins og öðrum þá verða menn að tala út frá staðreyndum. Nú skulum við bara tala um það hér hvað er á sameiginlega ábyrgð Íslands og hvernig við náum árangri með því að minnka losun á sameiginlega ábyrgð Íslands.