154. löggjafarþing — 96. fundur,  16. apr. 2024.

Orkusjóður.

942. mál
[23:22]
Horfa

Indriði Ingi Stefánsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir framsöguna. Það er mjög gaman að heyra áhugann sem hæstv. ráðherra hefur á loftslagsstefnu Pírata sem hefur einmitt hlotið mjög mikið lof almennt í umræðunni og er svo sem ekkert launungarmál að við viljum vera framarlega og leggjum mikla áherslu á loftslagsmál og umhverfismál, enda eru þau okkur mjög hugleikin. Um það snýst framtíðin.

Það sem við höfum verið að kalla eftir er heildarsýn í málaflokknum, að við séum með regluverk og löggjöf sem vinna saman og gera það að verkum að við getum náð árangri. Það sem hefur verið talað um árum saman í kringum svokölluð orkuskipti — það sem hefur verið að gerast er það að rafmagnsbílum fjölgar, sem er hrein viðbót, og um leið og við sleppum ívilnunum, um leið og þær eru ekki lengur fyrir hendi þá hverfur salan á rafmagnsbílum. Þá dregst hún svo áberandi saman að árangurinn sem við héldum að væri fyrir hendi er bara horfinn. Þess vegna þurfum við að horfa heildrænt á málin. Við þurfum að búa til lausnir sem eru sjálfbærar, sem þurfa ekki sífelldar ívilnanir til þess að virki. Það er það sem ég hvet til þess að verði skoðað, hvort það væri ekki hægt að bæta úr því svo að þetta vinni betur saman.