Orkusjóður.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Fyrst aðeins út af loftslagsstefnu Pírata; það verða að fara saman orð og gerðir. Eins og allir vita sem fylgjast með loftslagsmálum gengur þetta út á að taka út jarðefnaeldsneyti og setja inn græna orku í staðinn. Því miður hafa Píratar staðið í vegi fyrir því að við getum skapað hér græna orku. Og þeir sem standa í vegi fyrir því að skapa græna orku, þeir eru ekki fylgjandi aðgerðum í loftslagsmálum.
Ég hvet hv. þingmann, af því að ég veit að hann eins og aðrir þingmenn eru í alþjóðlegu samstarfi, að reyna að útskýra fyrir útlendingum að á Íslandi sé til fólk sem segist vera fylgjandi því að ná árangri í loftslagsmálum og sé á móti grænni orku. Það er mjög erfitt að útskýra. Ég var að reyna það bara fyrir nokkrum dögum og að sjá svipinn á útlendingunum þegar maður segir það er ótrúlegt.
Varðandi ívilnanir er almenna reglan sú að hugsað er um það, ekki bara á Íslandi heldur alls staðar, að það þurfi að koma tímabundinn stuðningur við orkuskiptin. Það er nákvæmlega það sama og við gerðum í hitaveituvæðingunni þó svo að við værum langt á undan öðrum í því. Allar þjóðir sem eru að ná árangri í þessu eru alla jafna að styðja með einhverjum hætti fólk sem er að fara yfir í græna bíla. Munurinn á okkur og öðrum liggur hins vegar í því að við erum með miklu ódýrari græna orku heldur en annars staðar. Stundum er orkan ekki einu sinni græn, rafmagnið ekki einu sinni grænt annars staðar. Ég hef auðvitað áhyggjur af því ef sala á rafmagnsbílum fer niður en fjárhagslegi hvatinn er svo sannarlega enn þá til staðar. Það hefur kannski ekki komið nógu skýrt fram en það er miklu ódýrara að eiga rafbíl heldur en jarðefnaeldsneytisbíl. Það er hins vegar verk að vinna að koma þeim upplýsingum áleiðis.