Orkusjóður.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra fyrir svar við andsvari. Nú kannast ég ekki við það að vera á móti grænni orku. Það sem við erum kannski á móti er frekar að það sé verið að sulla með einhvern grænþvott. Ég myndi kalla eftir því að fá nánari skýringar á því hvers hæstv. ráðherra vísar til hvað það varðar.
Mig langar samt að fá að vita, óháð því hvað við höfum gert áður — eins og með hitaveituna, þar förum við í verkefni sem verða síðan sjálfbær en þetta verkefni virðist ekki vera sjálfbært því að um leið og ívilnanirnar detta út þá hverfur allur árangurinn. Ef við ætlum að halda áfram að byggja upp innviði til þess að fara í orkuskipti þá má þessi árangur ekki hverfa. Við verðum að halda áfram. Það verður að vera árangur sem nýtist. Ef hér hrynur sala á rafmagnsbílum þá verða engar forsendur fyrir því að byggja upp frekara dreifikerfi.
Þess vegna langar mig að vita hvernig við ætlum að bregðast við. Hvernig ætlum við að bregðast við því sem blasir við okkur ef við skoðum bara tölur um nýskráningar; þegar salan er ekki lengur fyrir hendi, þegar fólk er ekki lengur að kaupa sér rafmagnsbíla? Hvað varðar það að þetta skili sér til allra tekjuhópa þá er það nú bara mjög þröngur hópur sem er að kaupa sér nýja bíla og þessar ívilnanir fara allar til nýrra bíla. Það eru ekki allir tekjuhópar sem hafa tök á því að kaupa sér nýjan bíl, hvort sem það er rafmagnsbíll eða jarðefnaeldsneytisbíll.