Orkusjóður.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir andsvarið. Þegar ég vísa til þess að Píratar hafi staðið gegn grænni orkuöflun þá er ég að vísa til þess að Píratar greiddu t.d. atkvæði gegn rammaáætlun. Við værum í vonlausri stöðu ef það hefðu allir greitt atkvæði eins og Píratar. Það á eftir að koma í ljós hvað Píratar gera varðandi vindorkuna, sameiningar stofnana og önnur frumvörp sem hér eru til að miða að því að við séum að gera eins og aðrar þjóðir, að einfalda fyrirkomulagið og ýta undir það að við getum framleitt græna orku af því að okkur liggur á.
Varðandi sjálfbærnina og hvað eigi að gera þá erum við enn þá, eins og ég nefndi, að styrkja. Það er bara í gegnum Orkusjóð. Þú sækir um styrk þegar þú kaupir þér nýjan bíl, þ.e. rafbíl. Það hefur ekki gengið jafn vel og á síðasta ári. Ég held að vísu að það gæti verið flækjustigið en síðan líka áttar fólk sig kannski ekki á því að þetta er samt sem áður mun hagstæðara fjárhagslega heldur en það að kaupa jarðefnaeldsneytisbíl. Við erum í miklu samráði við Bílgreinasambandið og aðra út af því hvernig við bregðumst við þessu. Þetta er besta leiðin til að ná niður losun á okkar ábyrgð.
Síðan liggur alveg fyrir og hv. þingmaður hefur alveg rétt fyrir sér þegar hann segir að það séu ekki allir sem kaupi nýjan bíl. Ég hef t.d. aldrei keypt mér nýjan bíl en það er kannski ekki gott dæmi. Við verðum að fá bílaleigurnar inn í þetta, sem er flókið verkefni vegna þess að við erum með þá sérstöðu að helmingurinn af nýskráningum á Íslandi, plús/mínus, eru bílaleigur. Þetta er örugglega hæsta hlutfall eða alla vega eitt hæsta hlutfallið í heimi. Eftirmarkaðurinn er náttúrlega mjög mikið með bílaleigubíla. Þetta er eitt af því sem við erum að vinna í samstarfi við þá hagsmunaaðila í þessu tilfelli en svo aðra hagsmunaaðila þegar kemur að því að koma með nýja uppfærða aðgerðaáætlun til að ná þeim árangri sem við viljum sjá.