Orkusjóður.
Forseti. Ef ég hefði vitað að hæstv. ráðherra væri svona hress þegar klukkan er að ganga miðnætti hefði ég lagt til að við værum alltaf með kvöldfundi. Ráðherra spyr: Er þetta stefna Pírata? Ég skal bara lesa stefnu Pírata fyrir ráðherrann, með leyfi forseta:
„Ísland beiti sér fyrir því að metnaður sé aukinn í ETS-viðskiptakerfinu á Evrópuvísu en setji sér jafnframt sjálfstæð markmið um aukinn samdrátt í losun frá stóriðju og flugi sem náð verði fram með sérstöku mengunargjaldi.“
Þannig að já, það er stefna Pírata að leggjast gegn því að stjórnvöld fái sérstaka heimild til þess að veita flugfélögunum 3 milljarða ríkisaðstoð til að menga meira. Umhverfis- og loftslagsstefna Pírata byggir öll á mengunarbótareglunni. Hún byggir líka á réttlátum umskiptum sem ríkisstjórninni reynist mjög erfitt að hafa í huga, eins og sést sennilega best á því að meginþungi aðgerða stjórnvalda síðustu árin felst í að niðurgreiða rafbíla til efstu tekjutíundar en einhvern veginn erum við látin bíða endalaust eftir borgarlínunni. Hæstv. ráðherra vildi meira að segja hætta að styðja fólk til að kaupa reiðhjól núna fyrir jól en sem betur fer sneru Framsóknarmennirnir í efnahags- og viðskiptanefnd hann niður með þá vitleysu.
Ég skil svo sem vel að það fjúki í ráðherrann, ekki bara vegna þess að hann er tilfinningavera eins og við hin heldur líka vegna þess að hann veit jafn vel og önnur í þessum sal að þessi stefna Pírata, sem ég var að lesa upp úr, er ástæða þess að Píratar fengu 81,2% í Sólinni fyrir síðustu kosningar, besta stefnan í kosningunum, (Forseti hringir.) á meðan Sjálfstæðisflokkurinn var einn af þeim sem rak lestina með 21%. Auðvitað svíður (Forseti hringir.) fólki í botnsætunum þegar það sér stefnu sem byggir á vísindum og metnaði.