Orkusjóður.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni fyrir að staðfesta allt sem ég hef sagt. Hann staðfestir það. Nú er það bara þannig að ef allir hefðu greitt atkvæði eins og þingflokkur Pírata ættum við enga von í loftslagsmálum — enga. Þið reynduð að fella rammann, nýtingaráætlunina til að búa til græna orku — fella hana. Þeir sem greiddu þannig atkvæði eru ekki á mælendaskrá þegar kemur að loftslagsmálum. Þeir eru bara ekki á mælendaskrá.
Í ofanálag ítrekar hann að hann hafi verið á móti því að íslensk stjórnvöld sæju til þess og ynnu að því að íslensk flugfélög gætu keppt á jafnræðisgrundvelli við evrópsk. Hann bara staðfesti það. Ég held að það sé bara mjög mikilvægt að allir viti af þessu. Ég hélt í einlægni að við myndum vilja að íslensk félög gætu keppt við félög í öðrum löndum í alþjóðlegri samkeppni en á því er mjög heiðarleg undantekning.
Hv. þingmanni er algerlega fyrirmunað að kynna sér þær breytingar sem hafa orðið á styrktarumhverfi varðandi bílana. Það er ekki lengur þannig að dýrustu bílarnir séu studdir. Það hefur verið nokkuð gagnrýnt og kannski hafa menn gengið of langt í því, ég ætla ekki að segja frá því. Ég bara þakka hv. þingmanni fyrir að staðfesta það sem ég sagði áðan.