Orkusjóður.
Herra forseti. Stundum hef ég smááhyggjur af því að hæstv. ráðherra fylgist ekki með því sem gerist í hans eigin málaflokki. Honum þykja stórtíðindi að ég staðfesti eitthvað með því að lesa þriggja ára gamla stefnu Pírata og hann er á einhverju svakalegu flugi varðandi þriggja milljarða ETS-stuðning ríkisstjórnarinnar við flugfélögin sem kom fram í nefndaráliti og atkvæðagreiðslu við frumvarp sem ráðherrann sjálfur lagði fram þennan vetur. Það var bara í haust. (Gripið fram í.) Þetta liggur allt fyrir í skjölum þingsins eða í kosningabaráttunni sem ég hélt að hæstv. ráðherra hefði tekið þátt í eins og sá sem hér stendur. En það er gott að ég nái að uppfræða hann þótt seint sé.
En það sem ég hef aðallega áhyggjur af er þessi þráhyggja sem hæstv. ráðherra hefur fyrir því hvernig þessi og hinn flokkur greiddi atkvæði varðandi tillögu um rammaáætlun hér í upphafi kjörtímabils. Við höfum nú rætt þetta áður þannig að ég veit ekki hvort það hafi eitthvað að segja að nefna þetta aftur. Ástæðan fyrir því að Píratar studdu ekki afgreiðslu tillögunnar var sú að stjórnarliðar gerðu breytingar á henni, ekki á faglegum, málefnalegum forsendum heldur með pólitískum hrossakaupum. Stjórnarliðar ákváðu að færa tvær virkjanir í Þjórsá úr nýtingu í bið. Með sömu rökum hefði átt að færa allar þrjár en það mátti ekki af því að virkjanalobbíið leyfði þeim það ekki. Þau færðu Kjalölduveitu í bið án raka þó að þar sé svæði sem hafi gríðarlega hátt verndargildi. (Forseti hringir.) Og einhvern tímann hét nú umhverfisráðherra að vera líka ráðuneyti friðlýsinga og náttúruverndar. (Forseti hringir.) Meiri hlutinn var ekki til í að færa Hvalárvirkjun úr orkunýtingarflokki í biðflokk þó að þar hefðu verið nákvæmlega sömu rök fyrir hendi og varðandi (Forseti hringir.) Þjórsárvirkjanirnar tvær sem meiri hlutinn var til í að færa. Við studdum ekki þessa tillögu vegna þess að meiri hlutinn fúskaði hana, meiri hlutinn eyðilagði hana, en blessaði ráðherrann trúir því sem hann vill.