154. löggjafarþing — 96. fundur,  16. apr. 2024.

Orkusjóður.

942. mál
[23:38]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hv. þingmaður ásakar mig um að fylgjast ekki með. Hann hefur tilgreint tvö frumvörp sem hann segir að ég hafi flutt en ég gerði ekki, hvorki varðandi reiðhjólin né varðandi flugið. (Gripið fram í.) Hv. þingmaður er svolítið mikið að grípa fram í. Þetta er eitthvað erfitt og ekkert nýtt í því.

Nú er það bara þannig að þegar þú greiðir atkvæði á Alþingi Íslendinga þá hefur það áhrif. Ef allir greiddu atkvæði eins og hv. þingmenn Pírata þá ættum við enga von í loftslagsmálum. Svo einfalt er það. Hv. þingmaður má bara lifa með því. Hv. þingmaður hlýtur að vita það af því að hann er oft að ásaka aðra um að fylgjast ekki með og skilja ekki og vera ekki inni í og hvað þetta er. Hv. þingmaður hlýtur að vita að ef allir greiddu atkvæði eins og þingflokkur Pírata þá ættum við enga von í loftslagsmálum.

Hv. þingmaður staðfesti að það truflar hann ekki neitt að hafa staðið hér og gagnrýnt að íslensk stjórnvöld hafi gætt hagsmuna íslenskra fyrirtækja í alþjóðlegri samkeppni. (AIJ: Gegn loftslagsmálum.) Ef hv. þingmaður hefði náð sínu fram þá væri samkeppnisstaða íslensku fyrirtækjanna mjög erfið með þeim afleiðingum sem því hefði fylgt. Hv. þingmaður er bara að staðfesta það. Allt í lagi, ég fagna því. Þetta liggur fyrir og það er bara gott að við þurfum ekkert að velkjast í vafa um það og allir eru meðvitaðir um það sem fylgjast með þessu.