154. löggjafarþing — 96. fundur,  16. apr. 2024.

Orkusjóður.

942. mál
[23:40]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Virðulegi forseti. Það er ansi athyglisvert að fylgjast með þeim andsvörum og þeirri ræðu sem hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur verið að flytja hér. Það virðist vera að þrátt fyrir að hæstv. ráðherra sé bent á ýmsa hluti og t.d. gefnar skýringar á atkvæðaskýringum þá velji hæstv. ráðherra úr hvað hann vill hlusta á af því sem kemur fram. Við erum að reyna að koma hér með málefnalegar athugasemdir við það hvernig verið er að styðja við loftslagsmál í gegnum Loftslags- og orkusjóð en það snýst allt hjá hæstv. ráðherra orðið um það hvernig Píratar greiða atkvæði hér og þar.

Það er nú einu sinni þannig að það virðist vera eina stefna hæstv. ráðherra þegar kemur að loftslagsmálum að virkja meira til að selja í fleiri stóriðjur. Það virðist vera það eina sem er í loftslagsstefnu Sjálfstæðisflokksins. Það er kannski ástæðan fyrir því að í Sólinni, mælaborði sem Ungir umhverfissinnar gerðu, kom flokkur hæstv. ráðherra út með falleinkunn, vegna þess að það eru ekki neinar aðgerðir í gangi.

Það sem hefur sýnt sig undanfarin ár er að útblástur á Íslandi er að aukast. Við erum ekki að standa okkur vegna þess að það eru engar alvöruaðgerðir í gangi. Þegar einhverjar aðgerðir eru í gangi, eins og t.d. að vera með með ívilnanir með bílunum þá er ekki nóg með að ívilnanirnar séu dregnar til baka og lækkuð sú upphæð sem hægt er að fá í gegnum Orkusjóð heldur er á sama tíma sett kílómetragjald sem gerir það að verkum að það er ekki lengur eins arðbært fyrir fólk að keyra á rafmagnsbíl. Þeir eru dýrari í innkaupum. Þeir eru örlítið ódýrari í rekstri en það kemur samt sem áður mjög mikið niður á buddunni. Þannig að hvatarnir til að fá fólk til að fara í þessi orkuskipti eru ekki til staðar eða eins sterkir lengur.

Ég hefði viljað sjá hæstv. ráðherra koma með tillögur um það hvernig ætti að laga slíka hluti. En nei, það eina sem virðist skipta máli hjá Sjálfstæðisflokknum er að fækka stofnunum og öðrum hlutum, t.d. með Loftslags- og orkusjóði. Það kemur einhver falleg Instagram-mynd í næstu kosningabaráttu þar sem stendur: Sjóðum fækkað úr tveimur í einn, eins og það skipti einhverju máli þegar kemur að því að draga úr útblæstrinum. Nei, það eru ekki sameiningar á stofnunum sem gera hlutina, það eru alvöruaðgerðir. Það eru aðgerðir eins og þær sem við Píratar höfum lagt fram, hlutir sem tengjast réttlátum umskiptum, hlutir sem tengjast mengunarbótareglunni og annað. Erum við að sjá eitthvað slíkt koma frá hæstv. ráðherra? Nei, ekkert slíkt er á dagskrá heldur er það eina sem við sjáum einhverjar sameiningar.

Þegar við reynum að benda á að aðgerðirnar séu ekki nógar þá virðist það eina sem kemst að hjá hæstv. ráðherra vera að reyna að rífa kjaft um það hvernig við Píratar gerum hlutina. Ég held að hæstv. ráðherra ætti að líta aðeins í eigin barm og meta sínar eigin aðgerðir og sjá að það þarf að taka alvarlega til hendinni þegar kemur að loftslagsmálum því að þessi ríkisstjórn er með algjöra falleinkunn þegar kemur að þessum málum.