154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

aðhaldsaðgerðir ríkisstjórnarinnar.

[15:04]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf):

Forseti. Öryrkjum voru gefnar væntingar um kjarabætur sem áttu að taka gildi strax á næsta ári. Um þetta hefur verið rætt allt kjörtímabilið og hnykkt var á því núna við endurnýjun ríkisstjórnarsamstarfsins að þetta væri sérstakt áherslumál. En nú lesum við í fjármálaáætlun að ein veigamesta aðhaldsaðgerðin til að slá á þenslu í samfélaginu, sem mótvægi við aðgerðir vegna kjarasamninga, sé frestun á kjarabótum til öryrkja, einhvers tekjulægsta hópsins í íslensku samfélagi. Þetta á að spara ríkinu 10 milljarða á næsta ári. Ég ítreka, forseti, að þetta er sérstaklega nefnt sem aðhaldsaðgerð gegn þenslu í fjármálaáætlun. Það er margt sem ríkisstjórnin hefði getað gert til að vinna gegn þenslu og til að fjármagna aðgerðir vegna kjarasamninga og Samfylkingin hefur ítrekað lagt fram tillögur í þágu þess, en hér eru öryrkjar af öllum hópum sérstaklega teknir út fyrir sviga og látnir bíða. Finnst hæstv. fjármálaráðherra þetta eðlileg og góð forgangsröðun? Má rekja þensluna í samfélaginu til þessa hóps? Datt Framsóknarflokknum ekkert skynsamlegra í hug til að fjármagna þessa kjarasamninga?