aðhaldsaðgerðir ríkisstjórnarinnar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. fjármálaráðherra fyrir þessa skýringu sem hentar við þetta tilvik, en ég ætla að fá að lesa hér upp úr nýbirtri fjármálaáætlun. Þegar verið er að ræða um þessa 17 milljarða aðhaldskröfu sem hér hefur verið flaggað af mörgum í þessari ríkisstjórn stendur, með leyfi forseta:
„Gert er ráð fyrir að þessar ráðstafanir skili um 17 ma.kr. minni vexti útgjalda frá því sem áður var ráðgert […] en þar af er varanleg útgjaldalækkun um 10 ma.kr. Munar þar mestu um seinkun á gildistöku nýs örorkubótakerfis …“ — Þetta er tekið fram sem sérstök ástæða í þessum 10 milljörðum og 17 milljarða heildarupphæð þannig að augljóslega ber ekki saman hvað er kallað aðhald og hvað ekki. Réttmætar væntingar voru um að þetta myndi taka gildi í byrjun næsta árs og því spyr ég: Er ekki svigrúm innan ríkisfjármálanna til að bæta öryrkjum þetta upp með einhverjum öðrum tekjuauka í millitíðinni ef þetta gekk ekki upp? Var þetta svigrúmið sem þurfti að nýta?