breyting á búvörulögum og endurskoðun á lögum um veiðigjald.
Virðulegi forseti. Það eru brýn og mikilvæg verkefni, almannahagsmunaverkefni, sem bíða nýs hæstv. matvælaráðherra. Þá er nú gott að hæstv. ráðherra hefur margháttaða reynslu, m.a. úr fjárlaganefnd en ekki síður úr atvinnuveganefnd þingsins, og því á ráðherranum ekki að vera neitt að vanbúnaði að taka strax á málum. Annars vegar koma strax upp í hugann þau ólög sem voru samþykkt, sem ríkisstjórnin hafði forystu um, að undanþiggja eða sniðganga samkeppnislögin. Verið var að nota velvild þjóðarinnar og velvild þingsins í garð bænda til þess að moka undir milliliði og farin þessi leið. Þetta þekkjum við.
Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra, af því að skrifað var mjög harðort bréf frá ráðuneytinu, sem er ekki gert í tómarúmi heldur með vitund og vilja viðkomandi ráðherra: Hvaða ráðherra var það sem samþykkti þetta? Var það hæstv. ráðherra Katrín Jakobsdóttir eða Svandís Svavarsdóttir, flokksmenn núverandi ráðherra? Mig langar líka að spyrja hæstv. ráðherra hvort hann taki undir þá gagnrýni sem kom frá ráðuneytinu. Vel að merkja þá er þetta ekki nýtt mál í ráðuneytinu. Þetta er ekki nýtt mál fyrir augum hæstv. ráðherra heldur eitthvað sem ráðherra kom að, á að þekkja mjög vel og á að geta svarað hér mjög skýrt. Tekur ráðherra undir gagnrýni eigin ráðuneytis í þessu máli?
Hitt er síðan það sem lýtur að Auðlindinni okkar, algjöru flaggskipi Vinstri grænna í ríkisstjórninni. Það kom í ljós í morgun, og ég fagna því sérstaklega, að ráðherra hyggst stefna að því að leggja fram frumvarp um þau mál sem Auðlindin okkar hefur snert á strax í vor. Má ekki búast við því að það verði gert? Vel að merkja þá var hæstv. ráðherra skipaður í Auðlindina okkar af hálfu Vinstri grænna og þekkir líka vel til á því sviði. Þess vegna er mjög eðlilegt að spyrja: Er ekki rétt að ráðherra fylgi þeim málum eftir og megum við búast við þeim málum núna á vorþingi?