breyting á búvörulögum og endurskoðun á lögum um veiðigjald.
Virðulegi forseti. Já, ég hlakka til að heyra hvenær ráðherra hyggst leggja fram frumvörpin um sjávarútveginn, hvort það verði ekki örugglega nú í vor hvort það eigi nokkuð að dvelja við þetta mál sem ráðherra þekkir mjög vel. Ég vil bara minna hæstv. ráðherra á það að almannahagsmunir felast ekki í því að Sjálfstæðisflokknum og Framsóknarflokknum líði vel eða milliliðunum sem þeir eru í forsvari fyrir. Almannahagsmunir felast í því að gæta hagsmuna almennings, gæta hagsmuna bænda, gæta hagsmuna neytenda, passa upp á að samkeppnin virki í raun af því að það er ekki heilbrigt samfélag þar sem samkeppnin virkar ekki. Almannahagsmunirnir felast í því að ýta undir það að hagsmuna almennings sé gætt en ekki þessara aðila, Framsóknarflokks, Sjálfstæðisflokks og annarra sem ég nefndi.
Ég vil ítreka mína spurningu: Mun ráðherra ekki hafa frumkvæði (Forseti hringir.) að því að taka upp málið? Hefur ráðherra ekki áhyggjur af því að þingnefndin fékk ekki einu sinni ráðuneytið á sinn fund? (Forseti hringir.) Hvaða frumkvæði ætlar ráðherra að hafa í þessu mikilvæga máli í þágu almannahagsmuna, í þágu samkeppni og í þágu bænda sem og neytenda?