154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

mat á áhrifum nýrra búvörulaga og umsóknir um leyfi til hvalveiða.

[15:19]
Horfa

matvælaráðherra (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Það er svo sem kannski ekki miklu við það að bæta sem ég hef nú þegar sagt um þetta mál undanfarna daga og hér áðan. Eins og ég minntist á gerir ráðuneytið ekki athugasemd við þinglega meðferð frumvarpsins í bréfinu. Varðandi EES-samninginn á það auðvitað bara eftir að koma í ljós hvort þessar áhyggjur reynist á rökum reistar. Þegar og ef að því kemur þá bara tökum við á því. Eins og staðan er núna hyggst sú sem hér stendur ekki grípa inn í nýorðna lagasetningu þingsins og það hefur ekkert breyst við það. Eins og ég hef líka sagt, að þegar kemur að því að taka málið til endurskoðunar, hvort það hafi náð fram sínum markmiðum, þ.e. til hagsbóta fyrir bændur og neytendur, þá auðvitað bara skoðum við það. Ef það reynist ekki vera þá tel ég að það þurfi að gera á því bragarbót. Þrátt fyrir að frumvarpið kveði á um þessi fjögur ár þá er í sjálfu sér hægt að gera það á hvaða tíma sem er, það er ekkert sem útilokar það. En eins og ég segi, núna hyggst ég ekki gera það. Það eru ekki komnar neinar ábendingar frá ESA. Hvort þær koma á eftir að koma í ljós. Ef það gerist tökum við á því þegar þar að kemur.