154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

mat á áhrifum nýrra búvörulaga og umsóknir um leyfi til hvalveiða.

[15:21]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Það er sem sagt augljóst að hæstv. matvælaráðherra ætlar ekki að gera neitt í málinu fyrr en hún neyðist til þess, sem er áhugavert. Þá langar mig að spyrja hæstv. matvælaráðherra um önnur mál sem þarf að taka ákvörðun í. Nú er umsókn um leyfi til hvalveiða. Ætlar ráðherra að taka á því máli á grundvelli laga um dýravernd, eða hvaða augum lítur hæstv. matvælaráðherra það mál? Og ef það stendur kannski til að gefa út leyfi, mun það verða til fimm ára eða verður það til styttri tíma?