leyfi til hvalveiða.
Herra forseti. Ég vil beina fyrirspurn til hæstv. matvælaráðherra í tengslum við hvalveiðar og leyfi sem ekki hefur enn verið útgefið þrátt fyrir að beiðni þar um hafi komið inn fljótlega upp úr áramótum. Hér í svari á undan sagði hæstv. ráðherra — kannski mismælti hann sig — að það væri erfitt við að eiga að svara spurningum á meðan mál væri til umfjöllunar í nefndum. Kannski er spurning hvaða nefnd fjallar um leyfisbeiðni í tengslum við hvalveiðar. Ég ætla að gefa mér að þetta hafi verið mismæli og að hæstv. ráðherra hafi verið að vísa til þess að málið væri til umfjöllunar í ráðuneytinu. Þá verð ég að minna ráðherrann á að hæstv. ráðherra er einmitt ráðherra málaflokksins þannig að ráðherrann hefur umtalsvert meira svigrúm til að tjá sig heldur en hann virðist bera skynbragð á.
Mig langar að spyrja í fyrri spurningu minni til hæstv. ráðherra: Hefur ríkislögmanni verið falið að semja við Hval hf. með vísan í álit umboðsmanns Alþingis þar sem er skýrt tilgreint að það sé í raun næsta skref hvað ákvarðanir fyrri matvælaráðherra varðar?
Í öðru lagi vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Hefur verið lagt mat á hvort viðbótarbótaskylda myndast mögulega núna vegna dráttar á afgreiðslu leyfisins?
Og er ráðherra tilbúinn til að staðfesta það hér aftur að beðið sé gagna í ráðuneytinu frá þeim fyrirtækjum sem óskað hafa eftir leyfi til hvalveiða? — Því að það stangast á við það sem fram hefur komið í fjölmiðlum um málið.
Þetta þrennt vil ég spyrja hæstv. ráðherra um: Eru gögn sem beðið er eftir frá umsækjendum? Hefur ríkislögmanni verið falið að semja og ná sáttum vegna álits umboðsmanns Alþingis? Hefur verið lagt mat á hvort viðbótarbótaskylda sé hugsanlega að myndast núna vegna þess að leyfisbeiðnin er ekki afgreidd lögum samkvæmt?