leyfi til hvalveiða.
Virðulegi forseti. Það er svona þegar maður er nýkominn á þingið, þá er maður enn þá í nefndastörfum. En að sjálfsögðu átti ég við til meðferðar í ráðuneytinu, það er þar sem það er. Það er eitt og annað sem þarf að afla gagna um, ekki bara frá fyrirtækjunum heldur aðilum þar sem þarf að leggja mat á það sem fram er komið og eins það sem áður hefur komið fram og verið gagnrýnt, af því að hv. þingmaður vísar til þess sem kom fram hér í tengslum við síðustu afgreiðslu. Við þekkjum þetta, það var sett reglugerð þarna sumarið 2022 og Matvælastofnun vann eftirlitsskýrslu í framhaldinu af því að veiðarnar hefðu ekki samrýmst markmiðum laga um velferð dýra og dauðastríð stórs hluta hvala (Gripið fram í.) sem voru veiddir á því tímabili hefði verið óásættanlega langt. Við þekkjum þessa sögu að þegar niðurstaðan varð sú sem hún varð þá var gripið til ákveðinna aðgerða þar sem var farið ofan í þessi mál og niðurstaðan varð eins og hún segir.
Ég vil bara halda því til haga hér að það er nú að störfum starfshópur innan ráðuneytisins sem er að fara yfir þessi mál með valkostagreiningu um mögulegar leiðir til úrbóta og til stefnumótunar í málaflokknum. Þar undir er bæði að taka mið af áframhaldandi veiðum en líka takmörkun eða bann við veiðum til framtíðar. Það er allt undir því sem verið er að skoða. Þessum hópi veitir forystu Þorsteinn Örlygsson, fyrrverandi hæstaréttardómari, (Gripið fram í.) þannig að við eigum von á því í haust. En burt séð frá því þá þarf ég að klára þetta mál. Það liggur alveg fyrir að það þarf að taka utan um þetta mál og taka ákvörðun um það hvernig örlög þess verða núna fyrir komandi vertíð um sumartímann. Þannig að ég segi eins og áðan: Ég get ekki svarað því nákvæmlega fyrr en ég hef meira í höndunum en ég hef í dag.