154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

leyfi til hvalveiða.

[15:28]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir ræðuna en það er miður að engri þeirra þriggja spurninga sem lagðar voru fyrir hæstv. ráðherra var svarað. Þær byrja ekki vel, óundirbúnu fyrirspurnirnar hjá nýtilkomnum ráðherra, en ég vona að úr rætist. Ég spyr kannski viðbótarspurningar því ég eiginlega vænti ekki svara við þeim þremur sem ég lagði fram: Hvaða tímaramma telur hæstv. ráðherra sig hafa til að taka þessa ákvörðun? Nú hefst vertíð í júní ef allt gengur eðlilega fram. Telur hæstv. ráðherra að það sé hægt að taka ákvörðun um útgáfu leyfis á síðustu stundu? Allir sem stunda einhvern rekstur vita að það er ekki fær leið. Ég vil spyrja hæstv. ráðherra: Hvað telur ráðherrann vera síðasta mögulega dag fyrir sig til að gefa út leyfi, verði það gefið út?