leyfi til hvalveiða.
Virðulegi forseti. Það er nú þannig að það er svo sem ekkert í lögum sem segir til um málsmeðferðartíma, þ.e. í lögum um hvalveiðar. En auðvitað er það góð stjórnsýsla, eins og hv. þingmaður bendir hér á, að draga hlutina ekki það lengi að komið sé óþægilega nálægt veiðitímabilinu svo að fyrirsjáanleikinn verði að einhverju leyti til staðar. Ég hef sagt að ég er að bíða eftir ákveðnum gögnum sem ég þarf að fá í hendurnar áður en ég get klárað að taka ákvörðun um þessi mál. Þar stendur málið akkúrat núna og ég mun auðvitað hraða afgreiðslunni eins og ég mögulega get. Það er auðvitað það sem er hér undir í málinu.