154. löggjafarþing — 97. fundur,  17. apr. 2024.

tímabil strandveiða.

[15:30]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegi forseti. Strandveiðitímabilið hefst nú í maí og strandveiðimenn hafa gert ráð fyrir því á undanförnum árum að geta veitt 12 daga í mánuði, í maí, júní, júlí og ágúst, 48 daga yfir sumartímann á handfæri, fjórar rúllur á bát, 16 krókar samtals. Þetta strandveiðikerfi kom í kjölfar mannréttindaálits Sameinuðu þjóðanna um að núverandi kvótakerfi væri brot á jafnræði og atvinnufrelsi og þarna átti að gefa frelsi til veiða öllum Íslendingum sem þess óskuðu. Í fyrra var strandveiðitímabilið stöðvað 11. júlí, í hittiðfyrra var það stöðvað 21. júlí af því að svokallaður 5,3% pottur var búinn. Spurningin er þessi: Mun hæstv. matvælaráðherra skella í lás á miðju strandveiðitímabili verði þessi pottur búinn eða mun hún bæta í pottinn til að tryggja það að strandveiðimenn og sjávarbyggðir landsins fái 48 daga til að stunda strandveiðar í sumar? Ég get bent hæstv. matvælaráðherra á það að á undanförnum fjórum fiskveiðiárum hafa 19.000 tonn af þorski verið óveidd samkvæmt kvótasetningu þannig að nægur er fiskurinn til að sækja, vilji hún bæta í pottinn.

Vert er að benda á að sjómenn fyrir austan eru farnir að flytja sig vestur á land og þetta eru sjómenn í kjördæmi hæstv. ráðherra sem eru að flytja sig vestur á land vegna þess að þeir treysta því ekki að 48 dagar verði tryggðir til veiða í sumar. Hvað ætlar hæstv. matvælaráðherra að gera þegar kemur að strandveiðum í sumar? Mun hún tryggja að það verði veitt í 48 daga í sumar eða mun hún gera það sama og fyrirrennari hennar í starfi og skella í lás á miðju tímabili? Mikil hætta er núna á því að það verði skellt í lás um mánaðamótin júní/júlí.