tímabil strandveiða.
Virðulegur forseti. Ég vil benda á að hjá fyrirrennara hennar í starfi var það nú þannig á fyrsta árinu að það var svokallaður skiptimarkaður. Það fóru 34.000 tonn af loðnu og hvað kom fyrir það til ríkisins? Jú, það komu 1.000 tonn af þorski í staðinn fyrir það. Ef einhver heldur að 34.000 tonn af loðnu sé jafn mikið og 1.000 tonn af þorski þá skal hann athuga það betur. Þessi afli, 1.000 tonn af þorski, átti að fara í strandveiðipottinn, bætast þar við. Ég minni hæstv. ráðherra á að hún er, ef ég man það rétt, meðflutningsmaður á máli, þar sem fyrsti flutningsmaður er þingmaður úr mínu kjördæmi, um að potturinn verði aukinn í 8,3% í tengslum við félagslegar veiðar, eða hvað er verið að kalla það. Það er alveg klárt mál að ráðherrann, í þessu ráðherraræði sem við höfum í dag, hefur vald til að bæta í pottinn ef hann sér fram á að hann er að tæmast — ef við horfum á þetta út frá excel-skjalinu sem kvótakerfið er í dag.
Líka má benda hæstv. ráðherra á að þetta snýst bara um (Forseti hringir.) hvort það eigi að auka strandveiðar þannig að þeir fái að veiða 48 daga. (Forseti hringir.) Þetta veiðarfæri ógnar ekki fiskstofnum við landið. Það eru ekki almannahagsmunir sem ættu að stöðva þetta atvinnufrelsi. Það eru engir almannahagsmunir þar fyrir hendi, (Forseti hringir.) vegna þess að krókur eyðir ekki fiskstofnum við landið.