Orkusjóður.
Forseti. Þetta er framhald umræðu sem gekk langt fram á kvöld í gær. Hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra bauð upp í þá umræðu sem ég hyggst nú nota tækifærið til að ljúka hér, þó að hún gæti mögulega virst eilítið út fyrir efnið. Hæstv. ráðherra gaf okkur þingmönnum Pírata tilefni til að árétta stefnu Pírata í umhverfis- og loftslagsmálum sem hæstv. ráðherra virðist hafa sérstakan áhuga á og gerði að umræðuefni í gær. Okkur er auðvitað bæði ljúft og skylt að kynna okkar stefnu við hvert tækifæri og sannarlega ánægjuleg tilbreyting að fá rými til að tala aðeins jákvætt þar sem við höfum því miður fundið okkur í nánast fullu starfi við að reyna að koma í veg fyrir afglöp þessarar ríkisstjórnar, þá sjaldan hún gerir hlé á eigin ágreiningi og innri dramaköstum og reynir að koma einhverju í verk, því að þá hefur það oft á tíðum reynst illa ígrundað og jafnvel í sumum tilfellum í trássi við sjálfa stjórnarskrána.
En að jákvæðninni. Við Píratar erum mjög stolt af stefnunni okkar í umhverfis- og loftslagsmálum, svo stolt raunar að loftslagsmálin voru eitt aðaláherslumál okkar í síðustu kosningum. Píratar líta nefnilega ekki á loftslagsmálin sem einhvern einn málaflokk heldur eru þau samofin fullt af öðrum stefnum og í raun öllu sem við gerum. Nýsköpun, samgöngur, byggða- eða efnahagsmál; alls staðar eru grænar aðgerðir í fyrirrúmi. Píratar ætla nefnilega að ráðast að rót vandans. Það gerum við með því að innleiða nýja nálgun í efnahagsmálum sem kemur mjög skýrt fram í okkar efnahagsstefnu, sem ég ætla kannski ekki að stela þessu þingmáli til að ræða en er alltaf til í það engu að síður, og breyta hvötum í hagkerfinu þannig að rányrkja á auðlindum og gróðasjónarmið trompi ekki lengur hagsmuni náttúrunnar og komandi kynslóða.
Píratar hafa talað fyrir því að lýsa yfir neyðarástandi í loftslagsmálum og fylgja því eftir með metnaðarfullum, réttlátum og framsæknum aðgerðum sem færa ábyrgðina þangað sem hún á raunverulega heima, á stjórnvöld og fyrirtæki, ekki almenning. Vandinn er vissulega stór en tækifærin eru það líka. Loftslagsvænar lausnir þurfa að vera í algjöru aðalhlutverki í atvinnu- og verðmætasköpun og munu verða það um allan heim næstu áratugina. Við viljum grípa þessi tækifæri. Ég get ekki þulið upp hina eiginlegu loftslagsstefnu Pírata á tveimur og hálfri mínútu þar sem hún er í átta köflum. Hún er róttæk, ítarleg og metnaðarfull og hana má nálgast í heild sinni á heimasíðu Pírata. Í stuttu máli og einfaldaðri mynd snýst hún um skýra stefnu í átt að kolefnishlutleysi, valdeflingu almennings og að auðvelda fólki að taka þátt í breytingunum, um græna umbreytingu í allra hag. Við viljum gera kröfur á stjórnvöld og fyrirtæki sem bera mesta ábyrgð. Þá viljum við styrkja stjórnsýslu loftslagsmála. Sannarlega hafa verið tekin það sem má kalla ákveðin sýndarskref í þá átt af hálfu þessarar ríkisstjórnar. Við höfum áhyggjur af því að verið sé að grænþvo ákveðnar aðrar hugmyndir ríkisstjórnarinnar og í rauninni Sjálfstæðisflokksins sem hafa svo sem alltaf verið ríkjandi í þeirra stefnu. Þær snúast ekkert um loftslagsmálin en það er eins og þau hafi séð sér leik á borði þegar loftslagsmál fara að kalla á græna orku af því að við höfum mjög mikla græna orku hér á landi, enda höfum við séð það í stefnu Sjálfstæðisflokksins og þar með svolítið í aðgerðum þessarar ríkisstjórnar að áherslan er á það að virkja meira og fjölga rafmagnsbílum á götunum frekar en að fækka þeim o.s.frv. Við viljum vernda óspillta náttúru og viljum setja vernd miðhálendis í lýðræðislegt ferli. Við viljum hringrásarsamfélag og erum með mjög skýra stefnu í átt að því, höfum lagt fram fjölmörg góð þingmál sem stuðla að því.
Hvað varðar þær umræður sem fóru fram í gær um það þingmál sem við ræðum hér og ég er að ræða þá hvet ég öll áhugasöm til að fara yfir þær ræður aftur og skoða þær, því að þar fór fram mjög áhugaverð umræða, og skoða umsagnir sem hafa borist um málið vegna þess að þar eru viðvaranir sem ég held að við munum þurfa að vera mjög meðvituð um áfram og halda á lofti í tengslum við þetta mál.