Orkusjóður.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir yfirferðina. Margt mjög áhugavert og ég vil taka undir margt af því sem hefur komið fram. Það er ákveðinn áherslumunur á stefnu okkar í Viðreisn og stefnu Pírata en við eigum þó eitt sameiginlegt, til að mynda áhersluna á hringrásina og hringrásarhagkerfið. Ég man að fyrir síðustu kosningar voru það einmitt þessir tveir flokkar sem fengu hvað hæstar einkunnir hjá Ungum umhverfissinnum fyrir þessa þætti, við fyrir hringrásarhagkerfið og Píratar fyrir — ég man það ekki, eitthvað annað (Gripið fram í.), ekki alveg allt hitt en það var eitthvert eitt ákveðið atriði sem Píratar voru með fínar áherslur í. Þó að okkur greini aðeins á um hvað þarf að gera — ég er þeirrar skoðunar að það þurfi að einfalda kerfið án þess að ganga á rétt náttúrunnar — þá þurfum við að tala um hvernig við nýtum tæknina betur og hvernig við getum náð í meiri orku. Það þarf ekki bara eingöngu að virkja, við getum gert þetta með allt öðrum hætti líka. En ég held að við getum og þurfum að mínu mati að opna augun fyrir því að taka þarf ákveðnar ákvarðanir í þessu. Ekkert hefur gerst í sjö ár hjá þessari ríkisstjórn þó að ég voni að það fari að sjá fyrir endann á þessari gíslatöku ríkisstjórnar á Hvammsvirkjun, en við bíðum og sjáum hvað það varðar.
Hitt er síðan að mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hún sjái fram á að búið sé að fjármagna þennan Loftslags- og orkusjóð sem málið gengur út á. Ég óttast það hreinlega að öll þessi innanbúðarátök ríkisstjórnarinnar, sem þingmaðurinn lýsti svo miklu betur áðan, séu að kosta okkur óhemjuverðmæti og verðmætasköpun. (Forseti hringir.) Þau kosta okkur ýmislegt í baráttunni við loftslagsvána og svo margt fleira. Við komumst ekki áfram af því að það er þessi gíslataka í málaflokknum innan ríkisstjórnarinnar og ég er hrædd um að sú gíslataka haldi áfram á hvorn veginn sem við sjáum þetta.